Horfðu á eftir Herjólfi í gegnum móðugler Haraldur Guðmundsson skrifar 11. júlí 2017 07:00 Alls mættu 58 meðlimir Safnaðarfélags Áskirkju í ferðina. „
Mín upplifun er sorg fyrir hönd þeirra sem höfðu skráð sig í ferðina því þetta voru að stærstum hluta eldri borgarar og safnaðarmeðlimir hér í kirkjunni,“ segir Petrea Ómarsdóttir, formaður Safnaðarfélags Áskirkju, og lýsir því hvernig 58 manna hópur eldri borgara og annarra safnaðarmeðlima missti af dagsferð til Vestmannaeyja þegar bókun hjá rútufyrirtækinu Skybus týndist. Hópurinn hittist fyrir utan Áskirkju á sunnudagsmorgun. Stóð þá til að rútan æki fólkinu í Landeyjahöfn og að þaðan yrði siglt til Vestmannaeyja með Herjólfi. „Þetta endar á því að ég hringi í fyrirtækið og vek þar bílstjóra sem kannaðist ekkert við málið. Á endanum kemur hann með gamla rútu frá öðru fyrirtæki þar sem þessir eldri borgarar þurftu að labba upp fimm til sex háar tröppur. Þarna var engin loftræsting og móða á nokkrum gluggum þannig að sumir sáu ekki út. Svo voru gírarnir ekki í lagi og allar aðrar rútur fóru fram úr okkur. Á þessum tímapunkti var ljóst að við myndum ekki ná þessu.“Petrea ÓmarsdóttirPetrea segist hafa reynt að koma skilaboðum til áhafnar Herjólfs um að hópnum myndi seinka. Þau hafi ekki komist til skila. Þegar rútan kom til Landeyjahafnar sáu safnaðarmeðlimirnir að Herjólfur hafði leyst landfestar um fimm mínútum áður og var þá uppselt í aðrar dagsferðir. „Við erum að tala um hóp sem hefur ekki farið til Eyja áður eða ekki í 40 ár. Þau sáu þarna tækifæri og því er þetta mjög leiðinlegt,“ segir Petrea. „Þessi bókun hefur týnst í kerfinu hjá okkur og það voru allar rútur okkar uppbókaðar. Við náðum að redda rútu en það var algjör garmur enda alveg hræðilega erfitt að fá bíl eins og staðan er í dag. Þetta voru mannleg mistök sem við hörmum og við endurgreiðum hópnum fyrir þetta. Við reyndum að mæta öllu sem við gátum,“ segir Arinbjörn Marínósson, framkvæmdastjóri Skybus, sem keyrði rútuna. „Við redduðum þessu þannig að við fórum með fólkið í byggðasafnið á Skógum og síðan tóku þau alveg rosalega vel á móti okkur á nýja Lava Center á Hvolsvelli,“ segir Petrea.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Innlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Fleiri fréttir „Töluverður og alvarlegur“ misbrestur við vinnslu mála Heimila íshellaferðir á ný Bylting í skólakerfinu og flugfreyja sem eyddi húsnæðissparnaðinum í flugnám JL húsið verður búsetuúrræði fyrir flóttafólk Eyvindur settur landsréttardómari Nýtt björgunarskip komið til landsins Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Færri ferðamenn þýðir lægri dagpeningar ríkisstarfsmanna Ökumaður bakkaði á barn á Ísafirði Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Vita ekki hvernig Rússar skilgreina gildi sín Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Fundur sem ræður úrslitum hafinn Neituðu að hafa smyglað tuttugu milljónum sígaretta Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Mjúkt vald Íslands út um allan heim Tvímenningar taldir tengjast Elko-málinu Tekist á um menntamál og brúarsmíði Auður mjög tímabundið settur forstjóri Tekinn með efni eftir að vinur sló sig í höfuðið með skiptilykli Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Kennarasambandið hlynnt nýjum matsferli Ekki í lífshættu eftir stunguárás í Austurbænum Hvernig þingmenn yrðu Arnar Þór, Jón Gnarr og Þórður Snær? Helga Mogensen látin Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Bein útsending: Menntaþing 2024 – Aðgerðir í menntaumbótum og viðbrögð við PISA Stór skjálfti í Goðabungu Boðað til fundar ráðuneyta og nefnda Alþingis um Ölfusárbrú í dag Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Sjá meira