Innlent

Eldur í fjölbýlishúsi í Hraunbæ

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Slökkivliðsmenn mættu á svæðið rétt upp úr klukkan þrjú.
Slökkivliðsmenn mættu á svæðið rétt upp úr klukkan þrjú. Halli
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í Árbæinn um klukkan þrjú vegna elds í fjölbýlishúsi. Um er að ræða austasta enda Hraunbæjar þar sem eldur logaði á 1. hæð í húsinu.

Þrír sjúkrabílar og fjórir dælubílar auk lögreglu mættu á svæðið en greiðlega gekk að slökkva eldinn sem kom upp í dýnu í íbúð í Hraunbænum. Dýnan hafði verið dregið út og var slökkvistörfum lokið örfáum mínútum eftir að þau hófust.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×