Alexis Sanchez tilkynnir sig veikan þegar Wenger vill fá hann á æfingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júlí 2017 09:30 Alexis Sanchez fékk lengra frí hjá Arsenal vegna verkefna hans með landsliði Síle í sumar. Vísir/Getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, býst við Sílemanninum Alexis Sanchez á sína fyrstu æfingu á sunnudaginn. Það er hinsvegar óvíst hvort kappinn hafi heilsu til. 24 klukkutímum eftir að Wenger sagðist búast við Sanchez á æfingu á sunnudaginn birti Alexis Sanchez færslu inn á Instagram-reikningi sínum þar sem hann tilkynnir sig veikan. Enfermo sick A post shared by Alexis Sanchez (@alexis_officia1) on Jul 27, 2017 at 6:33pm PDT Alexis Sanchez hefur verið á leiðinni frá Arsenal í allt sumar samkvæmt fréttum í enskum miðlum en Wenger vill fá hann á æfingu um helgina. Sanchez fékk lengra frí en liðsfélagarnir þar sem hann var með Síle í Álfubikarnum í Rússlandi í júnímánuði. „Fyrsta æfing Alexis og Mustafi verður á sunnudaginn eða á sama degi við mætum Sevilla í Emirates-bikarnum. Þeir eiga að æfa á þeim degi,“ sagði Arsene Wenger. Alexis Sanchez ákvað hinsvegar að svara á Instagram-síðu sinni eins og sést hér fyrir ofan. Hann birtir þar af sér hálfslöppum með trefil og fýlusvip og undir stendur „veikur“. Það er margt sem bendir til þess að þetta sé fyrirboði vandræða með Alexis Sanchez þrátt fyrir að Wenger ítreki að hann verði ekki seldur í sumar. „Hann er dýrmætur liðinu og ég held að hann elski félagið. Ég stend við það sem ég hef sagt áður. Við ætlum ekki að selja hann,“ sagði Wenger. Hinn 28 ára gamli Alexis Sanchez hefur ýmist verið á leiðinni til Manchester City eða Paris Saint Germain en hvort að hann sé í staðinn á leiðinni í „verkfall“ verður bara að koma í ljós á sunnudaginn. Það sem er vitað að Arsenal þarf á Alexis Sanchez að halda en hann var sem dæmi með 24 mörk og 11 stoðsendingar í 38 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira