Nýr forstöðumaður Alþjóðasviðs Viðskiptaráðs Íslands hefur verið ráðin. Sú er Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir. Mun hún taka við starfi Huldu Bjarnadóttur og hefur hún formlega störf 1. ágúst næstkomandi.
Sigrún á fjölbreyttan feril að baki. Hún lærði hagfræði hjá Háskóla Íslands og er með cand. merc. gráðu frá Viðskiptaháskólanum í Árósum. Þá hefur Sigrún starfað sem framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins. Hún var einnig ein þeirra sem stofnaði listahópinn Á vit.
Sigrún hefur jafnframt unnið að samantekt skýrslu um Gjaldtökuleiðir í ferðaþjónustu fyrir Stjórnstöð ferðamála ásamt því að hafa starfað sem framkvæmdastjóri Leikhúsmógúlsins og Miðborgar Reykjavíkur. Hún situr auk þess í stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.

