Lífið

Áttan, FM95BLÖ og Páll Óskar gerðu allt vitlaust í Dalnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flugeldasýningin var að vanda stórkostleg.
Flugeldasýningin var að vanda stórkostleg.
Laugardagskvöldið heppnaðist einstaklega vel á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gærkvöldi segja heimamenn að aldrei hafi eins margir verið í Herjólfsdal á laugardagskvöldinu. 

Kvöldið náði hámarki þegar strákarnir í FM95BLÖ komu fram klukkan 23:00 í gærkvöldi og gerðu þeir allt vitlaust. 

Sverri Þór Sverrisson, sem margir þekkja sem Sveppi, kom fram með strákunum en hann verð fertugur í gær. Dalurinn söng allur afmælissönginn fyrir Sveppa. 

Páll Óskar Hjálmtýsson kom einnig fram í gær og var stemningin í Dalnum frábær eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.