Erlent

Kim Jong-un orðinn þriggja barna faðir

Atli Ísleifsson skrifar
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, og eiginkona hans Ri Sol-ju árið 2015.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, og eiginkona hans Ri Sol-ju árið 2015. Vísir/AFP
Á sama tíma fréttir berast af því að Norður-Kóreumenn hafi skotið eldflaug yfir Japan hefur það spurst út að einræðisherra landsins, Kim Jong-un, hafi eignast sitt þriðja barn.

Ekki er mikið vitað um einkalíf forsetans og hefur ekki sést til eiginkonu Kim, Ri Sol-ju, í lengri tíma.

Suðurkóreska fréttastofan Yonhap segir frá því að þriðja barn hjónanna hafi komið í heiminn í febrúar síðastliðinn. Fréttastofan hefur þetta eftir suðurkóreskum þingmönnum sem hafa fengið upplýsingarnar frá leyniþjónustu landsins.

Kim og Ri gengu í hjónaband árið 2009 og eignuðust sitt fyrsta barn ári síðar. Annað barn kom svo í heiminn árið 2013.

Bandaríski körfuboltamaðurinn Dennis Rodman, sem er vinur Kim, greindi heimsbyggðinni frá öðru barni norðurkóreska leiðtogans og Ri, þar sem hann sagðist hafa fengið að halda á stúlkunni, Ju-Ae, í heimsókn sinni til Norður-Kóreu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×