Úrelt sjónarmið Bryndís Bjarnadóttir skrifar 22. ágúst 2017 07:59 Formaður Heimdallar skrifar grein til varnar úreltum sjónarmiðum í pólitísku flokksstarfi. Það vekur furðu að fulltrúi ungu kynslóðar stjórnmálanna skuli gera það. Þráðurinn í grein hans er sá að ástæða þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki náð vopnum sínum í höfuðborginni sé að þeim þúsundum og aftur þúsundum sjálfstæðismanna sem hafa komið að vali á framboðslista Sjálfstæðisflokksins hafi orðið hrikalega á og valið vitlaust fólk á framboðslista flokksins. Upplegg formannsins er að með því að útiloka aðkomu hins almenna flokksmanna að uppstillingu annarra sæta en forystumannsins sé líklegt að kosningar vinnist. Fámennur hópur úr innra starfi flokksins sé mun líklegri til að velja rétt fólk heldur en almennennir flokksmenn. Þessi málflutningur vekur furðu. Það er sérstaklega áhugavert að hann telur upp allar raddirnar sem fámenni hópurinn ætli að tryggja framgöngu á framboðslistanum. Þar er talað um ýmsar raddir, raddir kvenna, karla, raddir ungra og eldri sem og mismunandi hverfa. Allt er þetta góðra gjalda vert og þegar litið er til undanfarinna ára og áratuga verður ekki annað sagt en að frambjóðendur sjálfstæðisflokksins hafi endurspeglað ágætlega þessi sjónarmið. En það er ein rödd sem formaður Heimdallar sleppir að nefna. Hann sleppir að nefna rödd almennra sjálfstæðismanna í borginni, rödd sjálfstæðisstefnunnar. Almennir sjálfstæðismenn koma nefnilega mjög takmarkað að málum, skoðunum þeirra og mati á einstaklingum einungis hleypt að vali á leiðtoganum en aðrir verða valdir af fámennum hóp. Það er áhyggjuefni að formaður Heimdallar, fulltrúi ungu kynslóðarinnar í Sjálfstæðisflokknum skuli ekki sjá hætturnar við að horfið sé til gamalla vinnubragða þar sem lýðræðið er minna, handstýringin meiri og aðkoma hins almenna flokksmanns sem hefur hingað til verið hin eina sanna samviska flokksins gerð nánast að engu.Höfundur er stjórnarmaður SUS og fyrrverandi stjórnarmaður Heimdallar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru sálfræðingarnir? Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvar er grunnskólinn? Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Er lýðræðislegt að senda vopn til Úkraínu? Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Það á ekki að vera dekur að geta sótt sér sálfræðiþjónustu Ólafía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Um bókun 35, EES samninginn, Evrópusambandið og Bretland Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk, ekki fjárfesta Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Formaður Heimdallar skrifar grein til varnar úreltum sjónarmiðum í pólitísku flokksstarfi. Það vekur furðu að fulltrúi ungu kynslóðar stjórnmálanna skuli gera það. Þráðurinn í grein hans er sá að ástæða þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki náð vopnum sínum í höfuðborginni sé að þeim þúsundum og aftur þúsundum sjálfstæðismanna sem hafa komið að vali á framboðslista Sjálfstæðisflokksins hafi orðið hrikalega á og valið vitlaust fólk á framboðslista flokksins. Upplegg formannsins er að með því að útiloka aðkomu hins almenna flokksmanna að uppstillingu annarra sæta en forystumannsins sé líklegt að kosningar vinnist. Fámennur hópur úr innra starfi flokksins sé mun líklegri til að velja rétt fólk heldur en almennennir flokksmenn. Þessi málflutningur vekur furðu. Það er sérstaklega áhugavert að hann telur upp allar raddirnar sem fámenni hópurinn ætli að tryggja framgöngu á framboðslistanum. Þar er talað um ýmsar raddir, raddir kvenna, karla, raddir ungra og eldri sem og mismunandi hverfa. Allt er þetta góðra gjalda vert og þegar litið er til undanfarinna ára og áratuga verður ekki annað sagt en að frambjóðendur sjálfstæðisflokksins hafi endurspeglað ágætlega þessi sjónarmið. En það er ein rödd sem formaður Heimdallar sleppir að nefna. Hann sleppir að nefna rödd almennra sjálfstæðismanna í borginni, rödd sjálfstæðisstefnunnar. Almennir sjálfstæðismenn koma nefnilega mjög takmarkað að málum, skoðunum þeirra og mati á einstaklingum einungis hleypt að vali á leiðtoganum en aðrir verða valdir af fámennum hóp. Það er áhyggjuefni að formaður Heimdallar, fulltrúi ungu kynslóðarinnar í Sjálfstæðisflokknum skuli ekki sjá hætturnar við að horfið sé til gamalla vinnubragða þar sem lýðræðið er minna, handstýringin meiri og aðkoma hins almenna flokksmanns sem hefur hingað til verið hin eina sanna samviska flokksins gerð nánast að engu.Höfundur er stjórnarmaður SUS og fyrrverandi stjórnarmaður Heimdallar.
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar