Innlent

Óli Björn og Arnar fá Frelsisverðlaun SUS-ara

Atli Ísleifsson skrifar
Óli Björn Kárason er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Óli Björn Kárason er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/eyþór
Samband ungra Sjálfstæðismanna hefur ákveðið að veita Óla Birni Kárasyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og Arnari Sigurðssyni vínkaupmanni frelsisverðlaunin í ár.

Verðlaunin eru kennd við Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, en í tilkynningu segir að verðlaunin séu afhent ár hvert til þeirra sem hafa aukið veg frelsishugsjónarinnar á Íslandi.

„Óli Björn Kárason hefur verið ötull talsmaður frelsis á Íslandi í ræðu og riti síðustu áratugi. Óli Björn hóf stjórnmálaferil sinn í SUS og var framkvæmdastjóri sambandsins árin 1982–1983. Óli Björn hefur starfað sem lengst af í fjölmiðlum og útgáfu og var hann framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins, stofnandi og ritstjóri Viðskiptablaðsins 1994–1999, ritstjóri DV 1999–2003 og útgefandi Þjóðmála 2015–2016. Ritstjóri Amx.is 2008. Hann hefur einnig gefið út bækurnar Valdablokkir riðlast, Stoðir FL bresta, Þeirra eigin orð, Síðasta vörnin – Hæstiréttur á villigötum í eitruðu andrúmslofti og Manifesto hægri manns. Óli Björn var kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðvesturkjördæmi árið 2016. Framlag hans til frelsisbaráttunnar hefur haft mikil áhrif á opinbera umræðu hér á landi og hvatt til minni ríkisafskipta.

Arnar Sigurðsson hefur lengi talað fyrir auknu frelsi í viðskiptum og verslun. Arnar rekur fyrirtækið Sante ehf. sem annast innflutning á áfengi en félagið höfðaði nýverið mál gegn íslenska ríkinu og krafðist þess að ákvæði í reglugerð um framleiðslu, innflutning og heildsölu áfengis í atvinnuskyni yrði dæmd ógild. Arnar hefur einnig verið mjög áberandi í skrifum sínum í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum þar sem að hann tekur málstað einstaklingsins og fyrirtækja gegn ríkiseinokun,“ segir í tilkynningunni.

Fyrri verðlaunahafar eru:

2007: Andri Snær Magnason og Andríki

2008: Margrét Pála Ólafsdóttir og Viðskiptaráð Íslands

2009: Davíð Scheving Thorsteinsson og Hugmyndaráðuneytið

2010: Brynjar Nielsson og InDefence

2011: Ragnar Árnason og Advice

2012: Hannes Hólmsteinn Gissurarson og AMX

2013: Gunnlaugur Jónsson og Samtökin '78

2014: Pawel Bartoszek og Rannsóknarsetur um Nýsköpun og Hagvöxt, RNH

2015: Vilhjálmur Árnason og Viðskiptaráð Íslands

2016: Sigríður Andersen og Almenna bókafélagið




Fleiri fréttir

Sjá meira


×