Leyndardómsfullir fólksflutningar í aðdraganda formannskosninga Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. september 2017 22:15 Ísak Rúnarsson, annar frambjóðenda til formanns SUS, segist ekki þekkja til mannanna sem hafa flutt lögheimili sitt að Álftamýri 73. Vísir/aNTON BRINK/Stefán
Sjö ungir menn á aldrinum 18-26 ára, sem allir bjuggu áður í öðrum bæjarfélögum, hafa flutt lögheimili sitt að Álftamýri 73 í Reykjavík í aðdraganda sambandsþings Sambands ungra sjálfstæðismanna, SUS, sem haldið verður helgina 8.-10. september. Einn mannanna, sem þangað til nýlega var með lögheimili á Reykjanesi, segist hafa verið beðinn um að flytja lögheimili sitt til Reykjavíkur vegna sambandsþingsins og að greiða tilteknu framboði atkvæði sitt. Annars virðast fólksflutningarnir mjög leyndardómsfullir.Sagði vin sinn hafa beðið sig um að flytja lögheimilið vegna sambandsþingsinsUngu mennirnir voru allir með lögheimili í sveitarfélögum á Reykjanesi, utan einn í Garðabæ, en nú hafa lögheimili þeirra verið flutt að Álftamýri 73. Húsið er í eigu Martins Eyjólfssonar, sendiherra Íslands í Berlín, og konu hans Evu Þengilsdóttur, en þar er nú meðal annars til heimilis sonur Evu, Þengill Björnsson, sem er vinur annars frambjóðenda til formanns SUS. Blaðamaður náði tali af tveimur af ungu mönnunum sjö sem eru nú með lögheimili að Álftamýri 73. Annar þeirra, Sigurður Salómon Guðlaugsson, vildi ekkert tjá sig um lögheimilisflutningana að öðru leyti en að þeir hefðu verið gerðir. Hinn maðurinn, Grétar Karlsson, sagði að hann hefði flutt lögheimili sitt til Reykjavíkur vegna sambandsþingsins en vissi annars lítið um málið. „Vinur minn í Keflavík talaði um að ég kæmi frá bæjarfélagi sem væri of lítið, af því að ég bý í Sandgerði.“ Þá var flutningurinn gerður til þess að Grétar greiddi vini sínum, sem ráðlagði honum að flytja lögheimili sitt, atkvæði á sambandsþinginu kæmist hann á það. Þá vildi Grétar ekki segja til um það í hvaða framboði vinur sinn væri. Ekki er þó fullvíst hvort stjórn Heimdallar hafi tilnefnt mennina, sem eru með lögheimili að Álftamýri 73, á sambandsþingið en Ísak Rúnarsson, frambjóðandi til formanns SUS, segir í samtali við Vísi að framboðin hefðu enn ekki fengið samþykkta fulltrúalista í hendurnar.Gagnrýndi mótframboðið fyrir lögheimilisflutningaTveir eru í framboði til formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna, Ingvar Smári Birgisson og Ísak Rúnarsson. Kosið verður um nýjan formann á sambandsþingi á Eskifirði helgina 8.-10. september. Ingvar Smári, annar frambjóðendanna, gagnrýndi á fimmtudag stjórn Heimdallar fyrir val á lista yfir þá fulltrúa sem sendir verða á komandi sambandsþing. Heimdallur er með 45% allra þingsæta á þinginu eða 263 sæti alls og því vega sætin þungt. Ingvar sakaði stjórn Heimdallar enn fremur um að styðja við framboð mótframbjóðanda síns. Þá segir hann í bréfinu að stjórnin hafi gripið til þess ráðs að biðja hátt í hundrað manns að færa lögheimili sín til Reykjavíkur og þeir hafi þannig fengið forgang fram yfir Reykvíkinga með áralanga reynslu á bakinu af störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.Ísak Rúnarsson, frambjóðandi til formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna.vÍSIR/STEFÁNFrambjóðandi til formanns segist ekki þekkja til lögheimilisflutningannaAðspurður hvort lögheimilisflutningar af þessu tagi séu hluti af kosningabaráttu framboðsins segist Ísak Rúnarsson, annar frambjóðenda til formanns SUS, ekki þekkja til þess. „Ég þekki ekki þessa menn, ég þekki náttúrulega til Þengils, við erum félagar, en ég bókstaflega veit ekki hverjir eru þarna búsettir. Ég þekki ekki hverjir eru búsettir hvar í Reykjavík,“ segir Ísak. „Menn geta flutt lögheimili eins og þeir vilja og það er þá bara á þeirra forræði að gera það. Ég get ekki stýrt því hvar menn búa.“Kemur af fjöllumÞá er Ísak inntur eftir því hvort það teljist ekki undarlegt að umræddir sjö menn flytji lögheimili sitt á þetta tiltekna heimili nú í aðdraganda sambandsþingsins. Hann segir þá að eitthvað virðist vera um slíka flutninga. „Það er greinilega eitthvað um lögheimilisflutninga, virðist vera, en ég get svosem ekkert fullyrt það. Ég veit ekki hverjir búa hvar. Ég hef engin gögn, ég var að reyna að skoða þetta, en fann engin gögn um þetta.“ Þá segir hann framboðið ekki enn hafa fengið samþykkta lista yfir fulltrúa á sambandsþingið í hendurnar þar sem listarnir hafi ekki enn verið endanlega samþykktir af stjórn SUS. Ísak segir enn fremur að honum þyki ólíklegt að þeir sem flytji lögheimili sitt svo skyndilega fyrir kosningar verði valdir sem aðalmenn á sambandsþingið.Þengill Björnsson er einn húsráðenda að Álftamýri 73.vÍSIR/ANTON BRINKÞekkjast í gegnum félagsstörfÞengill Björnsson, húsráðandi að Álftamýri 73 og sonur eigenda hússins, hefur starfað við kosningabaráttu nokkurra stjórnmálaflokka. Hann er einnig vinur Ísaks og hefur unnið með honum í ýmiss konar félagsstörfum. Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis um málið segir Þengill, aðspurður að því af hverju mennirnir hefðu fengið lögheimili í Álftamýri, að þar hefðu hann og félagar sínir lögheimili. „Ég vænti þess að þú sért að visa til æskuheimilis míns að Álftamýri 73, hvar ég og mínir félagar búum og eigum lögheimili.“ Þá sagði hann tengingu ungu mannanna sjö við sig og framboð Ísaks vera í gegnum félagsstörf. „Eins og með svo marga aðra, í gegnum félagsstörf,“ segir Þengill. Aðspurður hvort eigendur hússins væru meðvitaðir um nýju heimilismennina segist Þengill sjálfur vera húsráðandi og „vel meðvitaður“ um þá.Óviss hvot hann fái að kjósaEkki náðist í eigendur hússins, hjónin Martin Eyjólfsson og Evu Þengilsdóttur, við vinnslu þessarar fréttar. Þá segist Þengill ekki geta gert ráð fyrir að einstaklingarnir, sem hafa nú lögheimili að Álftamýri 73, muni kjósa framboð Ísaks á sambandsþinginu. „Hver og einn fulltrúi á þinginu tekur sína eigin ákvörðun. Ég veit hvað ég mun kjósa en sjálfur er ég reyndar varamaður á þinginu, þannig að það er alls óvíst hvort ég fái yfir höfuð að kjósa. Ég hlakka þó mikið til að fara austur enda aldrei komið til Eskifjarðar, sem mér skilst að sé eitt fallegasta bæjarstæði landsins, þótt víðar væri leitað.“
Tengdar fréttir Fimm aðildarfélög SUS hyggjast segja sig úr sambandinu Ingvar Smári, sem býður sig fram til formanns segir að "stjórn Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem leynt og ljóst styður framboð Ísaks Rúnarssonar, til formennsku gætti þess við val á lista sinn að útiloka þá frá þinginu sem ekki eru yfirlýstir stuðningsmenn hans.“ 30. ágúst 2017 23:31 Mest lesið Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Erlent Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Innlent Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Innlent „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Innlent Ekkert verður af kaupunum á Krafti Innlent Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Erlent Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Erlent Fleiri fréttir Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Breytingar á Reykjavíkurflugvelli og asahláka Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Hörmungar í Los Angeles og myrkur í Smyrilshlíð Nýr leikskóli rís í Elliðaárdal Slæm meðferð Bandaríkjanna á frumbyggjum vekur ótta á Grænlandi Rektor MH tekur við skólamálum borgarinnar Bíll illa farinn eftir að hafa verið ekið á vegrið Sjá meira
Fimm aðildarfélög SUS hyggjast segja sig úr sambandinu Ingvar Smári, sem býður sig fram til formanns segir að "stjórn Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem leynt og ljóst styður framboð Ísaks Rúnarssonar, til formennsku gætti þess við val á lista sinn að útiloka þá frá þinginu sem ekki eru yfirlýstir stuðningsmenn hans.“ 30. ágúst 2017 23:31