Enski boltinn

Benitez verður ekki á hliðarlínunni gegn Swansea

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Benitez stýrir hér æfingu Newcastle á dögunum.
Benitez stýrir hér æfingu Newcastle á dögunum. Vísir/getty
Newcastle mætir Swansea í seinni leik dagsins í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar en það er ljóst að Newcastle verður án knattspyrnustjóra síns, Rafa Benitez, í leiknum.

Nýliðar Newcastle unnu fyrsta leik sinn í vetur í síðustu umferð í 3-0 sigri gegn West Ham á heimavelli fyrir tveimur vikum en þá tók við landsleikjahlé.

Fór Benitez í aðgerð vegna kviðslits á meðan landsleikjahlénu stóð og staðfesti Newcastle í morgun að hann yrði ekki með liðinu í dag á meðan hann nær sér eftir aðgerðina.

Leikur Swansea og Newcastle verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 15.00 frá Liberty-vellinum í Wales.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×