Sýningin var heldur betur glamúrleg enda haldin í gullfallegu frönsku umhverfi. Olivier Rousteign sveik ekki aðdáendur sína og bauð upp á elegant og kvenlega línu fyrir næsta sumar.
Smekkbuxurnar stálu þó senunni og það er pæling að dusta rykið af gömlum smekkbuxum, nú eða fjárfesta í nýjum fyrr en síðar. Sömuleiðis með lakkbuxur og jakka, þetta er komið til að vera.
Enn og aftur sjáum við svo anda níunda áratugarins svífa yfir vötnum sem er greinilega að koma með góða endurkomu.







