Lífið

Ellý Ármanns reynir að forðast gjaldþrot: „Þetta var ekki mér að kenna“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ellý Ármanns ætlar sér að standa við sínar skuldir.
Ellý Ármanns ætlar sér að standa við sínar skuldir.
„Ég skildi á sínum tíma og húsið var skráð á mig. Ég reyndi svo að semja við bankann en án árangurs. Svo fór að húsið var selt bankanum á uppboði,“ segir fjölmiðlakonan Ellý Ármanns sem er farin að mála málverk á fullu og er hún með þau til sölu.

„Það er tvennt í stöðunni og það er að borga bankanum fimm milljónir en þeir fara fram á eingreiðslu eða þá kveikja í kennitölunni minni. Ég ætla að láta reyna á hið fyrrnefnda með því að selja myndirnar mínar fyrir skuldinni. Þær eru flennistórar og óhefðbundnar málaðar með spaða.“

Ellý var áður í sambúð með Frey Einarssyni, fyrrverandi sjónvarpsstjóra Stöðvar 2 sem starfar í dag sem almannatengill. Í dag er Ellý í sambandi með athafnamanninum Steingrími Erlingssyni, fyrrverandi forstjóra og stofnanda Fáfnis Offshore.

Skuld Ellýjar er komin upp í tugi milljóna króna og bauð bankinn henni að greiða fimm milljóna eingreiðslu. 

„Ég vil alls ekki vera biturt fórnarlamb í uppgjöf, heldur sterk kona sem gefst ekki upp. Þetta var ekki mér að kenna.“

Ellý greindi fyrst frá málinu á Facebook og segir þar:

Hæ allir... ég þarf að finna 5 milljònir fyrir jòl... gæti màlað fleiri í þessum dúr ef einhverjum líkar og borgar mér fyrir verkin.. þá kveikir Arionbanki ekki í kennitölunni minni. Ég nota hér akryl liti - mála óhefðbundið með spaða. á ég að gera meira af þessu eða halda áfram að þrífa klósett og skipta á rúmum? Þessa kalla ég: Trú (Ellý trúðu á þig og láttu engan segja þér að þú getir ekki málað).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.