Menning

Síðasti viðburður sumarsins að Kvoslæk

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Richard Simm og Rut Ingólfsdóttir hafa spilað öll verkin áður, þó ekki á sömu tónleikum.
Richard Simm og Rut Ingólfsdóttir hafa spilað öll verkin áður, þó ekki á sömu tónleikum.
Belgíski fiðluskólinn er yfirskrift tónleika sem Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari halda í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð á laugardaginn, 30. september, klukkan 15. Þeir eru síðasti viðburður þessa sumars þar á bæ.

Rut stundaði framhaldsnám við tónlistarháskólann í Brussel og hún og Richard ætla að leika verk eftir tónskáldin Vieuxtemps, Wieniawski og Ysaÿe sem allir kenndu við skólann – en löngu fyrir hennar tíð. „Ég man að það voru plattar á veggjum skólans og styttur af þessum mönnum,“ rifjar hún upp.

Eftir hlé ætla þau Richard að spila sónötu eftir César Franck sem var belgískur að uppruna. „César Franck-sónatan er eitthvað sem allir fiðluleikarar óska að spila,“ segir hún. „Það sem er svo skemmtilegt er að César Franck gaf tónskáldinu Ysaÿe og konunni hans þessa sónötu í brúðargjöf. Ysaÿe rétt æfði hana á brúðkaupsdaginn og spilaði sjálfur í brúðkaupinu en hinn formlegi frumflutningur var nokkrum mánuðum seinna.“



Rut segir þau Richard Simm hafa spilað þetta allt áður. „En mig langaði að tengja þessi tónskáld saman núna og tel þau verk sem við völdum vera skemmtilegt prógramm að bjóða upp á.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.