Interpol lýsir eftir íslenskum karlmanni sem ákærður er fyrir nauðgun Anton Egilsson skrifar 30. september 2017 22:20 Interpol lýsti eftir manninum að beiðni embættis héraðssaksóknara. Vísir/EPA
Alþjóðalögreglan Interpol lýsir á heimasíðu sinni eftir Agnari Hólm Jóhannessyni, 51 árs gömlum karlmanni, sem ákærður er hér á landi fyrir nauðgun, þjófnað og líkamsárás. Agnar er eftirlýstur að beiðni embættis héraðssaksóknara sem gefið hefur út handtökuskipun á hendur honum.Fréttastofa RÚV greindi frá því í kvöld að embætti héraðssaksóknara hafi birt manninum ákæru og að það hafi staðið til að þingfesta hana í maí síðastliðnum. Sætir Agnar ákæru fyrir nauðgun, þjófnað og líkamsárás en hann á að hafa framið meint brot fyrir tveimur árum síðan. Lét maðurinn ekki sjá sig við þingfestingu málsins og fékk embætti héraðssaksóknara í kjölfarið þær upplýsingar að maðurinn væri farinn úr landi. Þá kemur einnig fram að maðurinn hafi áður komist í kast við lög en hann var fyrir þremur árum dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir umferðar-og fíkniefnalagabrot. Í dómnum kom fram að hann hefði á árunum 1987 til 2013 hlotið átta dóma fyrir hin ýmsu brot, meðal annars skjalafals og auðgunarbrot.
Dómsmál Mest lesið Dómari birtir nafn sæðisgjafa til að vara við honum og öðrum Erlent Úrskurðarnefnd vísar máli Búseta frá Innlent „Það er ekki hægt að koma svona fram við fólk“ Innlent Gullafólk, þingmenn og kanónur klöppuðu upp Guðrúnu Innlent Sjö líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt Innlent Krókur Dana á móti bragði sem vilja kaupa Kaliforníu af Trump Erlent Sérkennilegt að vera útilokuð vegna mála sem komi borginni ekki við Innlent Kveðst hafa komið að hjónunum látnum Innlent Segir Arabaríkin sameinuð í andstöðu sinni við hugmyndir Trump Erlent Gætu orðið krefjandi hliðarvindslendingar Innlent Fleiri fréttir Sérkennilegt að vera útilokuð vegna mála sem komi borginni ekki við Hefur lagt fram frumvarp og ætlar að eyða óvissunni Framhaldsskólakennarar funda hjá sáttasemjara Bjóða Birki Jón velkominn til starfa Fundað um launakjör í Karphúsi og meirihlutamyndun í borginni Hættustig á Vesturlandi vegna bikblæðinga „Það er ekki hægt að koma svona fram við fólk“ Gullafólk, þingmenn og kanónur klöppuðu upp Guðrúnu Kveðst hafa komið að hjónunum látnum Úrskurðarnefnd vísar máli Búseta frá Sjö líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt Gætu orðið krefjandi hliðarvindslendingar Fólk í geðrofi breyti raunveruleikanum til að lifa af Ábyrgð veghaldara minni á Íslandi en í nágrannalöndum Ríki og framhaldsskólakennarar funda á morgun Litið við á mótmælum brimbrettakappa sem forseti bæjarstjórnar segir ólögmæt Viðreisn ekki til í meirihlutasamstarf til vinstri Tímamót fyrir Finna að sinna loftrýmisgæslu fyrir NATO Guðrún, Hinrik og Elín skyndihjálparmanneskjur ársins Megi aldrei verða íslenskur veruleiki „Réttlæti er svakalega dýrt“ Svína- og sviðasultan menguð af Bacillus cereus og E. coli Meirihlutinn sem er að myndast, vopnaburður og mótmæli brimbrettakappa „Við verðum að hafa fólkið með okkur“ Seinar í strætó eftir yndislegt kryddbrauð Heiðu Meirihlutaspjall í heimboði Heiðu Bjargar Rósa og Þórhildur vilja stýra Mannréttindastofnun Gos geti hafist hvenær sem er Heimir Már til liðs við Ingu og Flokk fólksins Átta mál sem Jóhann Páll afgreiðir í stað Ölmu Sjá meira