Rekstrargjöld GAMMA jukust um 65 prósent á fyrri árshelmingi Kristinn Ingi Jónsson skrifar 18. október 2017 10:00 Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA á Íslandi.
Hagnaður fjármálafyrirtækisins GAMMA Capital Management nam 411 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og dróst saman um 8,5 prósent á milli ára. Mestu munaði um hærri rekstrargjöld en þau voru um 604 milljónir króna á tímabilinu og hækkuðu um 65 prósent á milli ára. Hreinar rekstrartekjur námu 1.118 milljónum króna á fyrri helmingi ársins og jukust um tæpar 200 milljónir á milli ára. Eigið fé félagsins var 1.839 milljónir króna í lok júnímánaðar og jókst um liðlega 6 prósent á milli ára. Voru eignirnar á sama tíma 2.730 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið 35,2 prósent. Til samanburðar var hlutfallið 52,2 prósent í lok síðasta árs. Alls störfuðu 22 manns að meðaltali hjá GAMMA á fyrstu sex mánuðum ársins, borið saman við 20 á sama tíma í fyrra, og námu laun samtals 230 milljónum króna. Til samanburðar námu þau 163 milljónum á sama tíma 2016 og hækkuðu þau þannig um 41 prósent á milli ára. Annar rekstrarkostnaður hækkaði hins vegar enn meira eða úr 156 milljónum króna í rúmlega 316 milljónir. GAMMA hefur á undanförnum tveimur árum haslað sér völl erlendis, fyrst með opnun skrifstofu í Lundúnum árið 2015 og síðan í Zürich í Sviss fyrr á þessu ári. Stefnt er að opnun skrifstofu í New York síðar á árinu.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Úlfur Þór til Firma lögmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira