Innlent

Stuðningur við ríkisstjórnina við frostmark

Jakob Bjarnar skrifar
Ekki er að sjá að Íslendingar sjái mikið eftir þeirri ríkisstjórn sem nú er að hverfa frá völdum.
Ekki er að sjá að Íslendingar sjái mikið eftir þeirri ríkisstjórn sem nú er að hverfa frá völdum. visir/anton
Samkvæmt nýrri könnun MMR, sem var að birtast, eru einungis 22 prósent sem styðja ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Sem kannski skiptir ekki miklu máli því hún er að hverfa frá völdum. En, á lokametrunum nær ríkisstjórnin að auka óvinsældir sínar en í síðustu könnun mældist fylgi við hana 22,5 prósent.

Könnunin var framkvæmd dagana 6. til 11. október 2017 og var heildarfjöldi svarenda 966 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Samkvæmt könnuninni mælast Vinstrihreyfingin grænt framboð stærst eða með 22 prósent, sama og ríkisstjórnin mælist með. Sjálfstæðisflokkurinn kemur fast á hæla Vg með 21 prósent fylgis.

Í tilkynningu frá MMR segir að bæði Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkurinn hafi tapað fylgi frá síðustu mælingu sem lauk 28. september 2017. Þá mældust Vinstri græn með 24,8% fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn með 23,5% fylgi. Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 13,0 prósent en það er aukning upp á 3 prósentustig frá síðustu mælingu.

Athygli vekur að fylgi Miðflokksins mælist með tæp 11 prósent, stærri en Píratar, Flokkur fólksins og Framsóknarflokkurinn. Þessi flokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hefur vart náð að kynna sín mál og eru að leggja fram framboðslista nú um mundir.

Stuðningur við önnur framboðin er sem hér segir:

Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,0% og mældist 10,4% í síðustu könnun.

Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,7% og mældist 7,3% í síðustu könnun.

Fylgi Pírata mældist nú 10,5% og mældist 10,0% í síðustu könnun.

Fylgi Flokks fólksins mældist nú 7,4% og mældist 8,5% í síðustu könnun.

Fylgi Framsóknar mældist nú 5,9% og mældist 6,4% í síðustu könnun.

Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 4,2% og mældist 2,5% í síðustu könnun.

Fylgi Viðreisnar mældist nú 3,6% og mældist 4,9% í síðustu könnun.

Fylgi annarra flokka mældist 1,8% samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×