„Ég prísa mig nú sælan að hafa ekki gengið í þennan söfnuð. Samkvæmt mínum skilningi og upplifun þá hefur flokkurinn snúist upp í andhverfu sína og í staðinn fyrir að standa fyrir heilbrigði og eitthvað göfugt virðist hann helst standa fyrir sjúkleika og lágkúru,“ segir í niðurlagi pistilsins.
Jón segist vilja leiðrétta nokkrar rangfærslur sem hann segir hafa verið uppi en hann hafi eftir hlé frá hinum pólitíska vettvangi farið á fund hjá Bjartri framtíð og rætt við Óttarr Proppé, formann flokksins.
Skelfilegur fundur hjá Bjartri framtíð
Jón rekur í alllöngu máli hvernig það kom til og gekk fyrir sig en á fundinum þyrmdi yfir hann.
„Gamall félagi, sem hafði verið með okkur í Besta flokknum, tók líka til máls og sagðist vera uppfull af gremju yfir að sjá svona mikið af nýju fólki og gömul andlit. Hún var reið vegna þess að henni fannst þau öll hafa verið að erfiða svo mikið og án þess að fá neina hjálp frá okkur en nú þegar byrjað væri að ganga vel þá ætluðum við að teika velgengnina.

Fram kemur að hann hafi fengið ýmis tilboð frá öðrum flokkum um sæti á lista en það hafi verið fyrir tilstilli vinar síns Dr. Gunnar, sem er á lista Samfylkingar, sem hann gekk til liðs við þann flokk. Og þiggur laun fyrir þá vinnu sem hann þar innir af hendi, en Jón segist sem rithöfundur án rithöfundalauna vera blankur. Hann sé aðeins með launaða vinnu sem dagskrárgerðarmaður á Rás 2 þar sem hann er með útvarpsþætti.
Kaldar kveðjur frá Björt og ómaklegar
Þá fer loft að verða lævi blandið, að mati Jóns, allverulega.
„Í framhaldi af þessu sé ég svo mjög svo sérkennileg viðbrögð frá framáfólki hjá Bjartri framtíð. Fyrst kemur Björt Ólafsdóttir starfandi umhverfis- og auðlindaráðherra í viðtal við Vísi. Viðtalið er einkennilega yfirlætislegt. Ráðherrann gefur í skyn að ég hafi farið fram á einhverjar greiðslur til mín og þar sem þau hafi ekki getað orðið við því þá hafi ég farið annað. Þetta er bara rangt. Ég fór aldrei fram á neinar greiðslur.

Eitthvað það sjoppulegasta sem Jón hefur orðið fyrir
Jón veltir fyrir sér því hvernig fjölmiðlar hafi komist á snoðir um það að hann fengi greitt fyrir sína vinnu fyrir Samfylkinguna, nokkuð sem hann hafði aðeins sagt Óttari Proppé af, og Dr. Gunni hafi verið í forsvari hvað það mál varðar.
Og enn kárnar gamanið því daginn eftir viðtalið sem Vísir átti við Björt kemur „svívirðilegri sending úr herbúðum Bjartrar framtíðar þegar Guðlaug Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar birtir mynd af undirskrift minni við meðmælendalista flokksins.

Ekkert nema vanþakklætið eitt
Jón segist aldrei hafa gert þessu fólki neitt, hann skuldi þeim ekkert og hann hefur aldrei beðið þau um neitt.
„Þessi flokkur er afsprengi Besta flokksins og hefur fengið mikinn meðbyr fyrir tengsl sín við Besta flokkinn og hefur gefið sig út fyrir að hafa þá helstu sérstöðu í Íslenskum stjórnmálum að halda á lofti inntaki eða hugmyndafræði Besta flokksins um heilbrigð samskipti. Ég studdi flokkinn í upphafi og gaf honum gott veganesti. Þessi flokkur hefur á margan hátt siglt á mér og minni arfleið þótt ég hafi ekki verið hluti af honum. Ég hef gefið þeim mikið en þau hafa aldrei gefið mér neitt, nema þennan skít núna.“
Pistill Jóns hefur þegar og að vonum vakið mikla athygli og félagar hans úr Besta flokknum taka undir með honum, sumir. Heiða Kristín, fyrrverandi stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, segir einfaldlega „Amen“ og Gaukur Úlfarsson segir að það þurfi að fara að halda árshátíð Besta flokksins.“