Átján Elísabet Brynjarsdóttir skrifar 10. október 2017 08:15 Í dag er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn. Markmið dagsins er að vekja athygli á geðheilbrigðismálum og að fræða almenning. Sýnt hefur verið fram á að vitundarvakning og fræðsla getur haft jákvæð áhrif í samfélaginu, allt frá upprætingu fordóma yfir í aukinn vilja einstaklinga til að leita sér aðstoðar. Undanfarið hefur umræða um geðheilbrigðismálefni og geðheilbrigðiskerfið verið í brennideplinum í pólitík og í dag eru einmitt átján dagar í næstu Alþingiskosningar. Talan átján. Sú tala er mjög mikilvæg þegar kemur að málefnum geðheilbrigðiskerfisins. Á flestum heilsugæslum landsins er boðið upp á gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu fyrir börn, þar til þau verða átján. Þá þurfa þau að borga. Aldursbilið 18 til 25 ára er það sem við verðum að beina sjónum okkar að, því það er á þeim aldri sem algengast er að geðsjúkdómar komi fram. Helsta dánarorsök ungra karlmanna á aldrinum 18 til 25 ára eru sjálfsvíg og samkvæmt rannsóknum sem gerðar voru á Íslandi um aldamótin hefur helmingur íslenskra ungmenna á aldrinum 16 til 24 ára hugsað um að enda líf sitt, auk þess sem einn af hverjum tíu þeirra hefur gert eitthvað til að skaða sig. Í þessu samhengi má nefna að sálfræðiþjónusta í háskólum landsins er verulega af skornum skammti. Við Háskóla Íslands starfar til að mynda einn sálfræðingur í hálfu stöðugildi fyrir um það bil 13.000 nemendur. Sálfræðiþjónusta er þar að auki ekki hluti af almannatryggingakerfinu á Íslandi og er því ekki niðurgreidd. Af þeim ástæðum er hætt við því að þetta aldursbil, sem hefur að jafnaði ekki mikið milli handanna, hafi hreinlega ekki tök á að verða sér úti um sálfræðiþjónustu. Átján dagar. Stjórnarsáttmáli fráfarandi ríkisstjórnar setur geðheilbrigðismál í forgang og í gildi er aðgerðaáætlun. Samkvæmt stjórnarsáttmálanum eiga börn og fullorðnir að geta nálgast sálfræðing á fimm af hverjum tíu heilsugæslustöðvum. Sú áætlun hefur ekki staðist en í lok þessa árs verða sálfræðingar á heilsugæslustöðvum, sem sinna átján ára og eldri, þrír talsins á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir þau miklu framfaraskref er hraði umbóta í geðheilbrigðismálefnum ekki nægur, en hann ræðst af því fjármagni sem varið er í málaflokkinn. Enn sem komið er hefur ekki nægilegu fjármagni verið varið í þennan málaflokk og þessi fögru loforð hafa því reynst innantóm. Nú eru átján dagar til stefnu og í tilefni dagsins vil ég sjá tilvonandi alþingismenn sameinast um geðheilbrigði landsins í gjörðum sínum á þingi eftir kosningar. Fjármagnið er til staðar og svo virðist sem viljinn sé það líka. Gerum eitthvað í þessu. Í lokin vil ég hvetja þá sem upplifa erfiðar hugsanir að leita sér aðstoðar. Það er mikilvægt að við ræðum þessar hugsanir og það eru ýmis hjálpleg úrræði í boði. Fyrsti viðkomustaður getur verið heilsugæslan þín. Geðhjálp býður einnig upp á ókeypis ráðgjöf. Þá ber einnig að nefna hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjall Rauða krossins þar sem við getum rætt erfiðar hugsanir nafnlaust. Þetta fyrsta skref getur verið erfitt að stíga, en það er engu að síður mikilvægt.Höfundur er hjúkrunarfræðingur og formaður Hugrúnar geðfræðslufélags. X Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru sálfræðingarnir? Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvar er grunnskólinn? Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Er lýðræðislegt að senda vopn til Úkraínu? Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Það á ekki að vera dekur að geta sótt sér sálfræðiþjónustu Ólafía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Um bókun 35, EES samninginn, Evrópusambandið og Bretland Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk, ekki fjárfesta Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar