Bíó og sjónvarp

Sjáðu nýjustu stikluna fyrir næstu Star Wars-mynd

Atli Ísleifsson skrifar
Aðdáendur Star Wars mega eiga von á veislu.
Aðdáendur Star Wars mega eiga von á veislu.
Ný stikla fyrir áttundu Star Wars myndina, The Last Jedi (Síðasti Jedi-riddarinn), var frumsýnd í bandarísku sjónvarpi í gærkvöldi.

Aðdáendur myndanna hafa beðið stiklunnar með mikilli eftirvæntingu en í henni má sjá Rey sveifla geislasverði sínu, að því er virðist undir leiðsögn Luke Skywalker. Sömuleiðis má sjá Leiu prinsessu með áhyggjusvip um borð í geimskipi og ýmislegt fleira til sem gefur aðdáendum tækifæri á að velta frekari vöngum yfir söguþræði myndarinnar og örlögum söguhetjanna.

Nýtt auglýsingaplakat fyrir myndina var sömuleiðis birt í gær, nokkrum klukkustundum fyrir frumsýningu stiklunnar.

Kvikmyndin verður frumsýnd þann 15. desember næstkomandi, en sjá má stikluna að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.