
Fársjúkt og peningafrekt óheilbrigðiskerfi – Ákall til alþingismanna
Eitt þykir mér eftirtektavert í málflutningi nær allra þeirra sem tala um heilbrigðiskerfið en það er málflutningurinn um að endurreisa og standa vörð um það. Rifrildi um fjárveitinginu til heilbrigðiskerfisins hafa átt sér stað frá því að ég man eftir mér og mun líklega halda áfram um ókomna tíð, nema að hugarfarsbreyting verði í samfélaginu þegar kemur að forvörnum innan heilbrigðiskerfisins.
Málið með okkar heilbrigðiskerfi er að það er fársjúkt og er í raun og veru að alltof stóru leyti óheilbrigðiskerfi. Stærstur hluti þeirra fjármuna sem settur er í þetta sjúka heilbrigðiskerfi fer í að meðhöndla lífsstílssjúkdóma (70-80%) en aðeins brotabrot (1-2%) í forvarnir, það er að kenna fólki að bera ábyrgð á eigin heilsu. Þetta sjúka kerfi skilar sér eingöngu í síauknum kostnaði fyrir samfélagið. Því seinna í sjúkdómsferlinu sem inngrip verða því dýrara verður að eiga við sjúkdóminn (sem oft má rekja beint til lífstíls).
Ein hugmynd væri að skella hreinlega í lás (nema í neyðartilvikum) á öllum heilbrigðisstofnunum og þá þyrfti fólk fyrst virkilega að sinna sinni heilsu því „neyðin kennir naktri konu að spinna.“ Munum við hugsa betur um heilsuna ef við treystum ekki á heilbrigðiskerfið til að sjá um okkur þegar við erum búin að skemma hanameð óhollu mataræði, stressi, reykingum, hreyfingar- og svefnleysi? Þetta eru líklega svolítið öfgafullar hugmyndir en væru mögulega til þess fallnar að núllstilla þetta gallaða kerfi og byggja upp annað betra sem stuðlar að heilbrigði landsmanna en viðheldur ekki bara óheilbrigði þeirra.
Ef við nennum getum haldið áfram að rífast um fjársvelti heilbrigðiskerfisins út í eilífðina. Því að stærri og flottari spítalar, betri lækningartæki eða betri lyf munu bara auka útgjöldin í þetta veika kerfi sem sinnir að miklu leyti mjög veiku fólki en hugar lítið sem ekkert að minnka þörf fyrir spítalana. Það er löngu orðið tímabært að hætta að fæða þetta óheilbrigðiskerfi. Við höfum ekkert annað val en að hætta að skrifa skýrslur, stofna nefndir og vera með gífuryrði um hversu mikið við þurfum að fara að sinna heilsu landsmanna með forvörnum og fara í alvöru að setja pening í forvarnir hér á landi. Af hverju eru t.d. ekki sálfræðingar eða næringarfræðingar starfandi á heilsugæslunum sem eru fyrsta stopp flestra í heilbrigðiskerfinu?
Alltof margir fá ófullnægjandi þjónustu á heilsusgæslum sem er álíka ónefni og heilbrigðiskerfi því allltof margar heilsugæslur hér á landi sinna ekki starfi sínu sem GÆSLUaðilar heilsu sinna skjólstæðinga. Fólk bíður í margar vikur eftir tíma hjá lækni sem hefur of mikið á sinni könnu og svo takmarkað af af úrræðum fyrir mann að enn einu sinni fer maður út frá honum með ávísun á verkjalyf, svefnlyf eða geðlyf. Á heilsugæslum eiga að vera starfandi öflug teymi lækna, hjúkrunarfræðinga, íþróttafræðinga, sjúkraþjálfara, næringarfræðinga og sálfræðinga sem kenna fólki að bera ábyrð á eigin heilsu. Svoleiðis heilsugæslukerfi tekur við veiku fólki og sendir það frá sér með verkfæri til efla heilsu sína heimavið til lífstíðar.
Ef ekkert verður að gert til að sporna við aukningu lífsstílssjúkdóma hér munum við ekki geta geta gert neitt annað en að setja stærstan hluta ríkisfjármuna í „heilbrigðis“kerfið því það mun þurfa fleiri lækna og hjúkrunarfræðinga, meiri og betri lyf, stoðtæki og fleiri aðgerðir. Kannski vilja einhverjir taka upp kapitalískt heilbrigðiskerfi þar sem þeir ríku fá mestu og bestu þjónustuna? Talandi um það, þá er heilsan líklega dýrmæstasta eign fátæka mannsins því það er dýrt að vera veikur og sérstaklega á Íslandi. Því er mikilvægt að kenna fólki að heilsan sé í raunþeirra dýrmætasta eign, en alltof margir átta sig fyrst á því þegar veikindi banka upp á.
Þetta fársjúka óheilbrigðiskerfi verður ekki læknað á einu kjörtímabili og það verða allir alþingismenn og landsmenn að skilja. Það mun taka áratugi að snúa við þessari óheillaþróun. En við höfum einfaldlega ekki kost á öðru en að setja meiri pening í forvarnir og láta einstaklinginn skilja hversu mikla ábyrgð hann ber á eigin heilsu. Ef við höldum áfram á sömu braut þá munum við verða gjaldþrota samfélag, bæði í fjárhagslegu og heilsufarslegu samhengi.
Við höfum svo frábær tækifæri til að verða ein hraustasta þjóð í heimi og fyrirmynd annarra þjóða í heilsueflingu og forvörnum en til þess að svo geti orðið þarf Alþingi að setja tóninn með því að beina fjármagninu í átt að heilsueflingu. En auðvitað er Alþingi ekki eitt í þessu því allt samfélagið mun þurfa að dansa með í þessum „heilsudansi“ og ekki síst hver og einn einasti Íslendingur. Þegar allt kemur til alls eru það jú við sem berum ábyrð á eigin heilsu!
Geir Gunnar Markússon
Höfundur er næringarfræðingur
Skoðun

Traustur vinur getur gert voðaverk!
Arnrún María Magnúsdóttir skrifar

Hrós getur skipt sköpum
Ingrid Kuhlman skrifar

Leiðrétting vegna rangfærslna framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda
Elín Margrét Stefánsdóttir skrifar

Þrautreynd baráttukona fyrir auknum fjárveitingum til Háskóla Íslands
Ragný Þóra Guðjohnsen skrifar

Vönduð vinnubrögð í umhverfismálum
Edda Sif Pind Aradóttir,Sævar Freyr Þráinsson skrifar

Jón og félagar eru farnir
Árni Guðmundsson skrifar

Gervigreind, uppfinningar og einkaleyfi
Einar Karl Friðriksson skrifar

Fyrirmynd í kennslu og fræðastarfi – af hverju við styðjum Silju Báru
Valgerður Björk Pálsdóttir,Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir skrifar

Við lifum í skjóli hvers annars
Dagný Hængsdóttir Köhler skrifar

Halldór 01.03.2025
skrifar

COVID-19: 5 ár frá fyrsta smiti
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Meira um íslenskan her
skrifar

Sannanir í dómsmáli? Huldufyrirtæki og huldusögur
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir til forystu
Hópur Sjálfstæðismanna skrifar

Háskóladagurinn og föðurlausir drengir
Margrét Valdimarsdóttir skrifar

Björn Þorsteinsson er gefandi og gagnrýninn stjórnandi fyrir öflugan Háskóla Íslands
Nanna Hlín Halldórsdóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar

En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – III – Fjármögnun háskóla
Pétur Henry Petersen skrifar

Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur
Micah Garen skrifar

Tölum um það sem skiptir máli
Flosi Eiríksson skrifar

Hvernig borg verður til
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Vill ríkisstjórnin vernda vatnið okkar?
Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Tækifærin felast í hjúkrunarfræðingum
Helga Rósa Másdóttir skrifar

Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund?
Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2025
Alice Viktoría Kent skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn – Breiðfylking framtíðar
Sigvaldi H. Ragnarsson skrifar

Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl
Jóna Lárusdóttir skrifar

Látum verkin tala
Sigríður María Björnsdóttir Fortescue skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir, leiðtogi með sterka framtíðarsýn
Jón Ólafur Halldórsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar