Sport

Garoppolo ætlað að bjarga 49ers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Garoppolo hefur sýnt lipur tilþrif er hann hefur fengið tækifæri hjá Patriots. Hann fær góð meðmæli frá Tom Brady.
Garoppolo hefur sýnt lipur tilþrif er hann hefur fengið tækifæri hjá Patriots. Hann fær góð meðmæli frá Tom Brady. vísir/getty
Leikstjórnandinn Jimmy Garoppolo er hættur að bíða eftir því að Tom Brady meiðist eða hætti því hann er búinn að semja við San Francisco 49ers.

49ers er að byggja upp nýtt lið og hefur tapað öllum átta leikjum sínum á tímabilinu.

Liðið byrjaði með hinn arfaslaka Brian Hoyer sem leikstjórnanda sem síðan var settur á bekkinn fyrir nýliða. Sá gat ekkert heldur og því náði 49ers í Garoppolo og losaði sig um leið við Hoyer.

New England Patriots fékk valrétt í annarri umferð nýliðavalsins fyrir leikstjórnandann.

Tom Brady er því ekki lengur með neinn varamann á bekknum en þriðji leikstjórnandi Patriots, Jacoby Brissett, fór til Indianapolis Colts í september. Patriots er í fríi um næstu helgi og getur því leitað að nýjum varaleikstjórnanda á meðan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×