Pósturinn útilokar ekki uppsagnir Atli Ísleifsson skrifar 7. nóvember 2017 11:32 Ákveðið hefur verið að fækka dreifingardögum bréfapósts í þéttbýli frá og með 1. febrúar næstkomandi. Vísir/Ernir
Pósturinn útilokar ekki að nauðsynlegt verði að grípa til uppsagna í tengslum við fækkun dreifingardaga fyrirtækisins í þéttbýli. Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður markaðsdeildar Íslandspósts, segir að vonast sé til að hægt verði að komast hjá uppsögnum en útilokar ekki að nauðsynlegt verði að segja upp fólki í einstaka tilfellum þegar fram í sækir. Ekki séu þó neinar uppsagnir fyrirhugaðar um næstu mánaðamót. „Það er starfsmannavelta hjá okkur og við munum reyna að taka þetta í gegnum hana eins og við getum. Svo eru ýmis tækifæri fyrir starfsfólk innan fyrirtækisins. Það er vöxtur í afhendingu pakka og fleiru, en það er ekkert hægt að útiloka að til þess þurfi að koma í einstaka tilfellum. Við munum hins vegar reyna að koma í veg fyrir uppsagnir og taka þetta í gegnum starfsmannaveltuna,“ segir Brynjar Smári. Í tilkynningu sem Pósturinn sendi frá sér í morgun kom fram að ákveðið hafi verið að fækka dreifingardögum bréfapósts í þéttbýli frá og með 1. febrúar næstkomandi. Ástæðan sé að bréfum hafi fækkað mjög á undanförnum árum, eða um 52 prósent frá árinu 2007, og heil sjö prósent það sem af er þessu ári. Alls starfa um 350 bréfberar hjá Póstinum í öllu þéttbýli á landinu, að tímavinnufólki meðtöldu, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu.
Tengdar fréttir Pósturinn fækkar útburðardögum í þéttbýli Pósturinn hefur ákveðið að fækka dreifingardögum bréfapósts í þéttbýli frá og með 1. febrúar næstkomandi. 7. nóvember 2017 10:04 Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira
Pósturinn fækkar útburðardögum í þéttbýli Pósturinn hefur ákveðið að fækka dreifingardögum bréfapósts í þéttbýli frá og með 1. febrúar næstkomandi. 7. nóvember 2017 10:04