Lífið

Hafnaboltastjarna fór á skeljarnar í viðtali eftir að hafa unnið titilinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fallegt augnablik.
Fallegt augnablik.
Carlos Correa, leikmaður Houston Astros, fagnaði meistaratitlinum í bandarísku hafnaboltadeildinni á heldur frumlegan hátt.

Astros vann úrslitaeinvígið gegn Los Angeles Dodgers og fór sjöundi og síðasti leikurinn í einvíginu 5-1.

Correa var tekinn í viðtal eftir leikinn og sagði; „Ég tók stórt skref á ferli mínum í kvöld og núna ætla ég að taka stórt skref í lífinu,“ sagði Correa, snéri sér að kærustunni sinni, Daniella Rodriguez, og bað hana um að giftast sér.

Rodriguez vann keppnina Miss Texas árið 2016 en hér að neðan má sjá myndband af atvikinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.