Bíó og sjónvarp

Beyoncé í Lion King

Beyoncé talar fyrir Nölu í endurgerð Lion King sem verður frumsýnd árið 2019.
Beyoncé talar fyrir Nölu í endurgerð Lion King sem verður frumsýnd árið 2019. Vísir/Getty
Tónlistarkonan Beyoncé mun ljá persónunni Nölu rödd sína í væntanlegri endurgerð af hinni sígildu Disney-mynd, Konungi ljónanna. 

Stórskotalið leikara mun sjá um talsetningu þessarar myndar, þar á meðal spjallþáttastjórnandinn John Oliver, Seth Rogen, Eric AndréBilly Eichner, Donald Glover, James Earl JonesChiwetel Ejifor og Alfre Woodard.

Donald Glover ljá Simba rödd sína og James Earl Jones endurtekur leikinn frá upprunalegu myndinni með því að ljá Mufasa rödd sína.

Chiwetel Ejiofor mun leika Skara en leikararnir Seth Rogen og Billy Eichner munu fara með hlutverk tvíeykisins Tímóns og Púmba á meðan John Oliver talar fyrir Zazu.

Myndin verður frumsýnd árið 2019 en leikstjóri hennar verður John Favreu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.