Conor McGregor biðst afsökunar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2017 10:30 Conor McGregor. Vísir/Getty
Bardagamaðurinn Conor McGregor sér eftir hegðun sinni síðasta föstudagskvöld þegar hann var staddur á bardagakvöldi í Dublin. Conor McGregor var ekki að keppa sjálfur þetta kvöld en hann ruddist engu að síður inn í búrið eftir að liðsfélagi hans Charlie Ward tryggði sér dramatískan sigur. McGregor hoppaði upp í fangið á Charlie Ward og var ekkert minna ánægður með sigurinn en sigurvegarinn sjálfur. Conor McGregor átti að sjálfsögðu engan rétt á því að vera í búrinu á þessari stundu en það voru þó ekki fagnaðarlætin sem fóru mest fyrir brjóstið á mönnum heldur hegðun Conor gagnvart dómara bardagans Marc Goddard. Marc Goddard var ekki búinn að klára bardagann á þessari stundu þótt að Charlie Ward væri augljós sigurvegari. Hann gekk í það verk og vísaði Conor McGregor út úr búrinu. Þá fauk í hinn æsta Conor sem brást illa við þessum aðfinnslum, hrinti dómaranum, hraunaði yfir hann og leit hreinlega út fyrir að hann ætlaði að ráðast á hann. Conor McGregor yfirgaf á endanum búrið og nú hefur hann sett afsökunarbeiðni inn á Instagram síðu sína. „Ég biðst innilega afsökunar á hegðun minni á bardagakvöldinu í Dublin um síðustu helgi. Ég var staddur þarna til að styðja við bakið á traustum liðsfélaga og vini en ég lét tilfinningar hlaupa með mig í gönur og fór yfir strikið. Ég sem margfaldur UFC meistari, framleiðandi, fyrirmynd og opinber persóna verð að gera meiri kröfur til mín,“ byrjaði Conor McGregor afsökunarbeiðni sína. Hann notaði reynda tækifærið líka og hélt áfram að gagnrýna umræddan dómara en það má sjá alla færslu Conor McGregor hér fyrir neðan. I sincerely apologize for my behavior at last weekends fight event in Dublin. While trying to support a loyal teammate and friend, I let my emotions get the best of me and acted out of line. As a multiple weight UFC champion, executive producer, role model and public figure, I must hold myself to a higher standard. The referee Marc Godard was making a horrendous decision in trying to pick an unconscious fighter up off the floor and force the fight to continue into the second round. Even against the wishes of the said fighters coach. The fight was over. After witnessing my fighter in a fight where the worst happened and the opponent passed away from his injuries on the night, I thought the worst was about to happen again, and I lost it and over reacted. I am sorry to everyone. I sincerely apologize to the Director of the Mohegan Tribe Department of Athletic Regulation, Mike Mazzulli, all the officials and staff working the event, Andy Ryan and his fighter John, two stonch ones that put up a great fight every time. That side will always have my respect, and lastly every one of my fans. I love yous all! I’ve always learned from my mistakes and this will be no different. A post shared by Conor McGregor Official (@thenotoriousmma) on Nov 14, 2017 at 9:48am PST
MMA Mest lesið England: Hver er kominn, að koma, farinn og að fara? Enski boltinn Víkingar á leið til Albaníu Fótbolti „Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“ Fótbolti Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Fótbolti Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Körfubolti Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Körfubolti Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Stefán Ingi á leið til Noregs Fótbolti Guðmundur Bragi til Danmerkur Handbolti Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Örlög Vals og Breiðabliks ráðast „Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“ England: Hver er kominn, að koma, farinn og að fara? Víkingar á leið til Albaníu Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Guðmundur Bragi til Danmerkur Stefán Ingi á leið til Noregs KR fær ungan framherja frá Húsavík Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Fórnaði sér fyrir fyrsta boltann frá Mbappé FIFA hefur rannsókn á rasískum söngvum Argentínumanna Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Adam Silver ver nýjan svuntuskatt NBA deildarinnar Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Frá Liverpool beint í teymi Flick Cecilía Rán spilar með Internazionale í vetur Luka Modric framlengir samning sinn við Real Madrid Liðsfélagi Hákonar á leið til United Jón Axel fer í nýtt félag á Spáni Borgarstjóri Parísar synti í Signu: „Ekkert of hættulegt“ Fer frá Barcelona til Chelsea Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær „Það var alltaf hugmyndin, þannig að mission completed“ McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sjá meira