Í færslunni segir að þingflokkurinn hafi hafið störf og hafi fengið úthlutað þingflokksherbergi í Alþingishúsinu. Enn liggi þó ekki fyrir hvar þingflokkurinn fær skrifstofu í húsakynnum þingsins, það komi ekki í ljóss fyrr en ljóst er hvaða flokkar mynda næstu ríkisstjórn.
„Þingflokkur Flokks fólkins lætur þetta þó ekki standa í vegi fyrir því að ganga til verka. Fundað er nokkrum sinnum í viku þar sem gestum er meðal annars boðið að koma til skrafs og ráðagerða við þingflokkinn. Þetta er liður í því að undirbúa þingstörfin sem hefjast af fullum krafti þegar þing verður boðað saman. Á sama tíma eru þingmenn óðum að kynnast hinum nýja vinnustað,“ segir í færslunni.