Skoðun

Tvístígandi Seðlabanki

Skúli Hrafn Harðarson og Stefán Helgi Jónsson skrifar
Líkt og við fjölluðum um nýverið lækkaði Seðlabankinn vexti óvænt þann 4. október síðastliðinn. Sú ákvörðun var áhugaverð því peningastefnunefnd virtist hafa breytt forsendum um jafnvægisraunvexti í spálíkönum sínum. Slík grundvallarbreyting hefði útskýrt hvers vegna vextir voru lækkaðir, þvert á væntingar greiningaraðila, rétt eftir ríkisstjórnarslit sem valda mikilli pólitískri óvissu, hvort sem litið er til ríkisfjármála eða til skattkerfisbreytinga með tilheyrandi gengissveiflum. Seðlabankinn kaus að líta fram hjá þessu og líta til annarra þátta og þá sérstaklega minni hagvaxtar á árinu 2017 í ákvörðun sinni. Allir meðlimir peningastefnunefndar voru sammála um að lækka vexti á þessum tímapunkti.

Eftirvænting markaðsaðila eftir nýrri hagspá, þar sem nánar yrði farið yfir sýn Seðlabankans á komandi misseri, var því óvenju mikil. Leiða mátti að því líkur að hagvaxtarspá yrði lækkuð og/eða að framleiðslugeta þjóðarbúsins yrði hækkuð frá fyrri spám. Hafa ber í huga að breyting stýrivaxta virkar sex til tólf mánuði fram í tímann.

Það voru því ákveðin vonbrigði þegar Seðlabankinn birti nýju hag­spána samhliða óbreyttum vöxtum þann 15. nóvember síðastliðinn. Sú spá gerir hvorki ráð fyrir mikilli breytingu á hagvexti né framleiðsluspennu fyrir árin 2018 og 2019 og í stórum dráttum er fátt nýtt sem þar kemur fram. Hins vegar er áhugavert að sjá hvernig kastljósið færist yfir á stjórnarslitin og hvaða áhrif kosningaloforðin gætu haft á komandi fjárlög. Farið er yfir hallarekstur ríkisins síðastliðin tvö ár og hvaða áhrif það hefur að stíga ekki á bremsuna á komandi kjörtímabili. Í fráviksdæmi þar sem gert er ráð fyrir að staðið sé við „lágmarksloforð“ úr kosningabaráttunni er bent á að líklega þurfi að hækka vexti um 0,5% í upphafi næsta árs. Harla ólíklegt er að ný stjórn setji ekki ekki smá kosningasvip á ný fjárlög.

Stefán Helgi Jónsson
Til þess að leggja áherslu á áhyggjur sínar er tónninn í yfirlýsingu peningastefnunefndar þyngdur frá fyrri yfirlýsingum: „Núverandi aðhald peningastefnunnar virðist að svo stöddu duga til þess að verðbólga verði að jafnaði við markmið.“ Orðalagið „virðist duga“ gefur ekki fyrirheit um frekari vaxtalækkanir í bili heldur þvert á móti. Það setur ákvörðun peningastefnunefndar um að lækka vexti þrem vikum áður í einkennilegt ljós þar sem stjórnin var fallin á þeim tíma og búið var að boða til kosninga.

Jafnvægisraunvextir upp á 3% eru því enn inni í hagspárlíkani Seðlabankans; forsenda sem meðlimir peningastefnunefndar virðast ekki allir vera sammála um og eru að okkar mati of háir, sérstaklega þegar horft er til þess hvernig sparnaður hefur verið að aukast og skuldsetning haldist hlutfallslega óbreytt í þenslunni undanfarin misseri. Miðað við miklar sviptingar á skoðunum peningastefnunefndar virðast vegast á ólík sjónarmið nefndarmeðlima og því er erfitt að greina hver næstu skref verða. Ólíkar skoðanir hafa hugsanlega áhrif á gagnsæi milli funda. Aðstæður hafa þrátt fyrir allt breyst hratt til hins betra og mikið þarf að ganga á í stjórnmálunum til þess við sjáum ekki áframhaldandi skeið raunvaxtalækkunar.

Höfundar eru sjóðstjórar hjá Júpiter rekstrarfélagi.

Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál. 




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×