Áskorun rúmlega 300 íslenskra stjórnmálakvenna vegna kynferðisofbeldis og áreitni: "Við krefjumst þess að allir karlar taki ábyrgð“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. nóvember 2017 19:24 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Heiða Björg Hilmisdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Inga Sæland, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Lilja Alfreðsdóttir skrifa allar undir áskorunina.
Rúmlega 300 íslenskar stjórnmálakonur hafa sent frá sér áskorun vegna kynferðisofbeldis og áreitni í stjórnmálunum hér á landi.Greint var frá því í fyrr í dag að stofnaður hefði verið hópur á Facebook þar sem konur sem tekið hafa þátt í íslenskum stjórnmálum hafa undanfarna daga sagt frá ofbeldi og áreitni af hendi kollega í pólitíkinni. Hópurinn heitir „Í skugga valdsins“ og er það jafnframt yfirskrift áskorunarinnar. Í tilkynningu sem fylgir áskoruninni segir að endanlegur listi þeirra kvenna sem skrifa undir yfirlýsinguna og allar sögurnar verði birtar á föstudag. Með áskorun kvennanna sem send er út til fjölmiðla nú fylgja níu nafnlausar reynslusögur úr hópnum en þar segir meðal annars ein konan frá því að hún geti ekki talið upp hversu oft henni hafi verið beint og óbeint hótað nauðgun vegna skoðana sinna. Áskorunina, nöfn þeirra sem skrifa undir hana og reynslusögurnar níu má sjá hér fyrir neðan.1. Kynferðisofbeldi og áreitni á sér stað í stjórnmálum rétt eins og annars staðar í samfélaginu.2. Meðfylgjandi eru frásagnir kvenna sem lýsa reynslu sinni.3. Það verður að verða breyting á. Við krefjumst þess að allir karlar taki ábyrgð, að allir stjórnmálaflokkar taki af festu á málinu, setji sér viðbragðsreglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær muni fá stuðning.Undirskriftir: 1. Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður og borgarfulltrúi, Samfylkingin 2. Guðlaug Svala S Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Björt framtíð Hafnarfirði 3. Drífa Snædal, fyrrverandi framkvæmdastjóri VG 4. Sigríður Erla Sturludóttir, 2. varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 5. Claudia Overesch, Alþýðufylkingin 6. Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands 7. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Viðreisn. 8. Silja Jóhannesdóttir, stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar 9. Jóhanna María Sigmundsdóttir, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins 10. Nikólína Hildur Sveinsdóttir, alþjóðaritari Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar 11. Björt Ólafsdóttir, ráðherra, Björt Framtíð 12. Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins 13. Hildur Þórisdóttir, varabæjarfulltrúi L-lista á Seyðisfirði og formaður Samfylkingar á Seyðisfirði 14. Þórey Vilhjalmsdottir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna 15. Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð 16. Sabine Leskopf, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar 17. Herdís Sigurjónsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ 18. Dagrún Ósk Jónsdóttir, ritari UVG 19. Sigrún Jónsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastýra Samfylkingarinnar og fyrrv. bæjarfulltrúi í Kópavogi 20. Margrét Erla Þórsdóttir, viðburðastýra UVG 21. Sigrún Skaftadóttir, fyrrum Feminist Network Coordinator fyrir Young European Socialist, fyrrum alþjóðaritari Ungra Jafnaðarmanna og núverandi stjórnarmaður í kvennahreyfinu Samfylkingarinnar. 22. Sólveig Skaftadóttir, stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar 23. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna og forseti borgarstjórnar 24. Margrét Lind Ólafsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar 25. Elín Margrét Böðvarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn 26. Kristbjörg Þórisdóttir varaþingmaður Framsóknarflokksins 27. Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Vinstri grænna 28. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar 29. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar 30. Þórlaug Borg Ágústdóttir, ráðsfulltrúi og fyrrverandi formaður Pírata í Reykjavík 31. Eva Einarsdottir, varaborgarfulltrúi og fv. varaþingkona, Björt Framtíð 32. Sólveig Anna Jónsdóttir, Sósíalistaflokki Íslands 33. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar, Fljótsdalshéraði 34. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrrv. þingkona Samfylkingarinnar 35. Laufey Líndal Ólafsdóttir, meðlimur í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokks Íslands. 36. Guðrún Arna Kristjánsdóttir, fyrrverandi varabæjarfulltrúi Garðabæ, Samfylkingin 37. Pálína Margeirsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknar, Fjarðabyggð. 38. Auður Lilja Erlingsdóttir, VG 39. Margrét M. Norðdahl, varaborgarfulltrúi í Reykjavík, Samfylkingin 40. Dagbjört Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri 41. Halldóra Mogensen, þingkona Pírata 42. Eva Pandora Baldursdóttir, fráfarandi þingmaður og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi 43. Svandís Svavarsdóttir formaður þingflokks VG 44. Eydís Ásbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð 45. Ragnheiður Hergeirsdóttir, f.v. bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg 46. Bryndís Haralds, þingkona og bæjarfulltrúi, Sjálfstæðisflokkurinn 47. Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg 48. Þórhildur Hlín, Ungir jafnaðarmenn 49. Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins 50. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, Vinstri græn 51. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, formaður Sambands ungra Framsóknarmanna 52. Ída Finnbogadóttir, varaformaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík 53. Kristín Elfa Guðnadóttir, ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg 54. Rósanna Andrésdóttir, Samfylkingunni 55. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þinmaður, ritari og starfandi varaformaður Sjálfstæðisflokkurinn 56. Eva H. Baldursdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður félags frjálslyndra jafnaðarmanna 57. Esther Ösp Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð 58. Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ 59. Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og alls konar, VG 60. Sigrún Blöndal, bæjarfulltrúi L-listans á Fljótsdalshéraði og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 61. Arna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Í-listans í Ísafjarðarbæ og formaður bæjarráðs 62. Katla Hólm Þórhildardóttir, Píratar 63. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Vinstri Græn, fyrrverandi formaður UVG 64. Maria Hjalmarsdottir varaþingmaður samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi 65. Margrèt Gauja Magnúsdóttir, Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, Samfylkingin. 66. Sigurþóra Bergsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi 67. Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar, Sjálfstæðisflokkur 68. Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, varabæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð 69. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, Samfylkingunni 70. Silja Snædal Drífudóttir, fyrrverandi alþjóðaritari UVG og varamaður í stjórn VG í Reykjavík 71. Erla Björg Guðmundsdóttir, Samfylkingunni 72. Alma Lisa Johannsdottir, VG 73. Marta Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík, Samfylkingin 74. Tanja Rún Kristmannsdóttir, varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna 75. Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi og ritari VG 76. Ingibjörg Ólöf Isaksen, bæjarfulltrúi á Akureyri - Framsóknarflokkurinn 77. Oddný Sturludóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar 78. Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar og fyrrum þingmaður Bjartrar framtíðar 79. Ingibjörg Ingvadóttir, Framsóknarflokki 80. Eydís Blöndal, önnur varaþingkona VG í Reykjavík suður 81. Nichole Leigh Mosty, formaður hverfisráðs Breiðholts og fyrrum þingmaður Bjartar framtíðar 82. Halla Gunnarsdóttir, varaþingmaður VG 83. Kristín Sævarsdóttir varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi 84. Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna. 85. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennaframboði, Kvennalista, Reykjavíkurlista og Samfylkingu 86. Iðunn Garðarsdóttir, Vinstri græn 87. Dóra Sif Tynes, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar 88. Andrea Hjálmsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi VG á Akureyri 89. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg 90. Margrét Tryggvadóttir varaþingmaður Samfylkingarinnar 91. Jónína Erna Arnardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 92. Guðrún Ágústsdóttir, aðal-eða varaborgarfulltrúi frá 1978-1999, forseti borgarstjórnar frá 1994-1999, VG 93. Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður Viðreisnar 94. Guðrún Jóna Jónsdóttir, fyrrum forman Ungra jafnaðarmanna 95. Sigríður Huld Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri 96. Hildur Friðriksdóttir, VG 97. Sigríður Pétursdóttir, VG, formaður hverfisráðs Kjalarness 98. Una Hildardóttir, gjaldkeri og 1. varaþingmaður VG í Suðvesturkjördæmi 99. Gyða Dröfn Hjaltadóttir, formaður Ungra vinstri grænna 100. Ása Elín Helgadóttir, framkvæmdarstjórn UJ, Samfylkingin 101. Marzibil S. Sæmundardóttir, fyrrverandi varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar 102. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins 103. Dóra Magnúsdóttir, varaborgarfulltrúi í Rvk. Samfylking 104. Sema Erla Serdar, fyrrv. formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og fyrrv. formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi 105. Gerður Jónsdóttir stofnfélagi í Miðflokknum. Fyrrverandi formaður Landssambands framsóknarkvenna, fyrrverandi bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri 106. Adda María Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði 107. Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra Pírata, 2. varaþingmaður Pírata 108. Kristín María Birgisdóttir, formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar, Lista Grindvíkinga 109. Anna Lísa Björnsdóttir, VG 110. Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands 111. Gréta Ingþórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 112. Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, Framsóknarflokki 113. Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata 114. Inga Auðbjörg Straumland, fyrrverandi varaformaður ungra jafnaðarmanna 115. Svala Jónsdóttir, varamaður í nefnd fyrir VG 116. Freyja Steingrímsdóttir, stjórnmálaráðgjafi og meðlimur í Samfylkingunni 117. Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, varaformaður UVG 118. Helga Dögg Björgvinsdóttir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna 119. Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins 120. Guðný Hildur Magnúsdóttir, VG, fyrrverandi formaður VG á Vestfjörðum og núverandi stjórnarkona VG á Vestfjörðum 121. Jóna Björg Sætran, 4 á lista Framsóknar- og flugvallarvina, númer 5 á lista Framsóknarflokksins til alþingiskosinga 2017 122. Birna Hafstein, Viðreisn 123. Steinunn Ýr Einarsdóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar 124. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata 125. Bryndís Friðgeirsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ, fv. formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og fv. formaður Samfylkingarinnar á N Vestfjörðum 126. Rannveig Ernudóttir fyrrum ritari Pírata og núverandi vararitari Pírata, frambjóðandi með Pírötum 2017 127. Andrea Ósk Sigurbjörnsdóttir, innanstarfsfulltrúi UVG 128. Greta Björg Egilsdóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina og nú síðast á lista Miðflokksins 129. Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir, fyrrv. formaður framkvæmdaráðs Pírata og núverandi formaður Pírata í Hafnarfirði 130. Guðrún Ágústa þórdísardóttir, fyrrverandi varaþingmaður Pírata 131. Álfheiður Eymarsdóttir kafteinn Pírata á Suðurlandi og varaþingmaður 132. Fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri til 12 ára, formaður Félags verslunar og skrifstofufólks Akureyri í 10 ár. Miðstjórn ASÍ og stjórn LÍV. 133. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Stofnfélagi í Miðflokknum, áður í Framsókn 134. Ása Richardsdóttir, Samfylkingin, bæjarfulltrúi Kópavogi/ varaforseti bæjarstjórnar 135. Ása Lind Finnbogadóttir, fyrrverandi frambjóðandi Dögunar til Alþingis en er skráð bæði í Pírata og Samfylkingu 136. Þorgerður María Halldórsdóttir, fv Sjálfstæðisflokknum 137. Margrét Kristín Helgadóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í bæjarstjórn Akureyrar 138. Guðrun Erla Geirsdottir ein af stofnendum Kvennaframboðsins og Samfylkingarinnar og fyrverandi varaborgarfulltr. 139. Björk Vilhelmsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Reykjavíkurlistans 140. Þórhalla Rein Aðalgeirsdóttir, fyrrv. formaður UJ í Gbæ og Álftanesi, fyrrv. stjórn Röskvu 141. Halldóra Jónasdóttir, einkaþjálfari og flugkona, virk Pírata og frambjóðandi í SV fyrir Pírata 2017 142. Hanna Bjartmars Arnardóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar 143. Þorgerður Jóhannesdóttir, skrifstofustjóri Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarfulltrúi 144. ilja Dōgg Baldursdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri L- listinn 145. Sigrún H Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar 146. María Pétursdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands 147. Ingibjörg Stefánsdóttir, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík, fv. varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og varamaður í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar. Fyrrverandi starfskona Kvennalistans 148. Sigríður Sigmarsdóttir Sjálfstæðisflokkur 149. Anna Margrét Guðjónsdóttir, fv. varaþingkona Samfylkingarinnar, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík 150. Sigrún Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar. 151. Hólmfríður Bjarnadóttir, Pírati 152. Unnur Tryggvadóttir Flóvenz, fv. varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og fv. málefnastýra Ungra jafnaðarmanna 153. Sigríður M Guðjónsdóttir Bæjarfullltrúi Fjarðslistans í Fjarðabyggð 154. Sigríður Gísladóttir, formaður VG á Vestfjörðum 155. Eva Dögg Guðmundsdóttir, stjórnarmeðlimur í Stjórn Samfylkingarfélags Reykjavíkur SffR 156. Ragnheiður Elín Árnadóttir, fv. þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins 157. Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona VG 158. Steinunn Rögnvaldsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra vinstri grænna 159. Geirlaug Jóhannsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð, Samfylking 160. Kristín Soffía Jónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar 161. Guðrún Íris Valsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð 162. Bryndís Sigurðardóttir, fyrsti formaður Samfylkingar í Hveragerði og á lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi fyrir nokkrum kosningum 163. Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar 164. Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir Sjálfstæðisflokkurinn 165. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fv ráðherra og borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins 166. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, fv.bæjarfulltrúi og fv.varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins 167. Diljá Ámundadóttir, fv. varaborgarfulltrúi BF 168. Sigrún Björk Jakobsdóttir, Sjálfstæðisflokki. Fv.Bæjarfulltrúi og Bæjarstjóri á Akureyri. 169. Bryndís Gunnlaugsdóttir, fv. bæjarfulltrúi, fv. formaður SUF og fv. varaþingmaður Framsóknar 170. Ingibjörg Óðinsdóttir, fyrrv. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. 171. Elva Dögg Ásud. Kristindóttir, oddviti VG í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi í bæjarstjórn 172. Borghildur Sölvey Sturludóttir, varabæjarfulltrúi BF í Hafnarfirði 173. Þorgerður Anna Arnardóttir, Sjálfstæðisflokkurin 174. Valgerður Halldórsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði – Samfylking 175. Vilborg Oddsdóttir, Samfylking, 5. sæti suður Reykjavík fyrir síðustu Alþingiskosningar 176. Jónína Sigurðardóttir, stjórnarmaður í Heimdalli og oddviti Vöku félags lýðræðissinnaðra stúdenta á Menntavísindasviði – Sjálfstæðisflokkurinn 177. Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs og fv. varaþingmaður 178. Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar 179. Katrín Ósk, varaþingmaður Sjálfstæðisflokkins í SV, varaformaður Stefnis félag ungra í Hafnarfirði og oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við HÍ 180. Jenný Heiða Zalewski, varaformaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar 181. Ásrún Birgisdóttir, ritari Félags sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi í Reykjavík 182. María Júlía Rúnarsdóttir, Framsókn 183. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins 184. Margrét Gísladóttir, fyrrv. aðstoðarmaður utanríkisráðherra og fyrrv. ráðgjafi forsætisráðherra Framsókn 185. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, varaþingkona Framsóknar og stjórnarmeðlimur SUF 186. Erla Hlynsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata 187. Dagbjört Hákonardóttir, fv. gjaldkeri og meðstjórnandi Ungra Jafnaðarmanna, Röskvukona og fv. formaður Ungra Evrópusinna 188. Inga Sæland, þingmaður og formaður Flokks fólksins 189. Ásrún Helga Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi Í Grindavík fyrir Framsóknarflokkinn 190. Eva Margrét Kristinsdóttir, fv. varabæjarfulltrúi og fv. formaður ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi. Samfylking. 191. Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði og varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi. 192. Guðrún Katrín, fyrrverandi flokkstjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarstjótnarmaður á Seyðisfirði fyrir Samfylkinguna 193. Guðveig Eygloardottir oddviti Framsóknar í sveitarstjórn Borgarbyggðar 194. Lára Björg Björnsdóttir, VG 195. Sæunn Stefánsdóttir, fyrrum ritari og þingmaður Framsóknarflokksins 196. Dagný Jónsdóttir, fv. þingmaður Framsóknarflokksins 197. Anna Björg Níelsdóttir bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir Framfarasinna 198. Inga María Hlíðar Thorsteinson, Sjálfstæðisflokkurinn 199. Sunna Rós Víðisdóttir, fv. formaður framkvæmdaráðs Pírata 200. Elsa Kristjánsdóttir, gjaldkeri Pírata 201. Ragnhildur Vigfúsdóttir, Kvennalista og síðar Samfylkingin 202. Inga Þyri Kjartansdóttir, fv. framkvæmdastjóri Landssambands Framsóknarkvenna, í miðstjórn og varamaður í kjördæmisráði Framsóknarflokks í Suðvesturkjördæmi 203. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fv. Varaborgafulltrúi Samfylkingarinnar 204. Fríða Rós Valdimarsdóttir, fyrrverandi frambjóðandi Kvennalistans 205. Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, Samfylkingin 206. Halla Sigríður Steinólfsdóttir, varaoddviti í sveitarstjórn Dalabyggðar og í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 207. Hafdís Gunnarsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi og formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ 208. Sif Huld Albertsdóttir, varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Ísafjarðarbæ 209. Birna Lárusdóttir, Sjálfstæðisflokki. Fyrrverandi bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, fyrrverandi varaþingmaður í NV-kjördæmi 210. Hildur Knútsdóttir, fyrrv. varaþingmaður VG 211. Hrefna Guðmundsdóttir, Björt framtíð, á lista bæði í sveitastjórnar- og alþingiskosningum 212. Sara Dögg Svanhildardóttir, formaður jafnréttisnefndar Viðreisnar 213. Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins 214. Sara Oskarsson varaþingmaður Pírata 215. Ásta Dís Guðjóns, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Var í 2 sæti Rvk-N fyrir Dögun 2016 og í stjórn Dögunar. Sit í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokksins 216. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður 217. Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins 218. Jasmina Crnac, Oddviti Bjarta framtíðar í Suðurkjördæmi. Einnig fulltrúi velferðarnefndar í Reykjanesbæ fyrir A-lista 219. Sigríður Elva Konráðsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi 220. Guðrún Inga Ingólfsdottir, hagfræðingur og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins 221. Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar 222. Una María Óskarsdóttir, uppeldis-, menntunar- og lýðheilsufræðingur, 1. varaþingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi. 223. Brynhildur S. Björnsdóttir, Björt framtíð 224. Halldóra Baldursdóttir, Fulltrúi gæðamála OR, Miðflokkurinn 225. Ólína Freysteinsdóttir, Fjölskyldufræðingur, Samfylkingin 226. Drífa Sigfúsdóttir, MS í mannauðsstjórnun, f.v. forseti bæjarstjórnar/varabæjarstjóri og varamaður á Alþingi, stjórn LFK, framkvæmdastjórn o.fl. Framsóknarflokki 227. Anna Pála Sverrisdóttir, fyrrum formaður Ungra jafnaðarmanna og fyrrum varaþingmaður Samfylkingarinnar. 228. Anna Lóa Ólafsdóttir bæjarstjórn RNB 2014-15 229. Jónína Holm, bæjarfulltrúi N-listans sem er þverpólitískt framboð í Garði 230. Sólveig Guðjónsdóttir 3. sæti hjá Miðflokknum, Suðurkjördæmi 231. Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar 232. Auður Alfa Ólafsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar 233. Hildur Karen Sveinbjarnardóttir, Sjálfstæðisflokki 234. Anna Bara Ólafsdóttir, framkvæmdarstjóri, Miðflokkurinn 235. Sunna Snædal, varakona í Velferðarráði, VG 236. Valgerður Sveinsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins 237. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri og formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi. 238. Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins 239. Laufey Elísabet Gissurardóttir, fjölskyldunefnd á Seltjarnarnesi, Samfylking 240. Oktavía Hrund Jónsdóttir, 1. varaþingkona Pírata suðvestur og stjórnarformaður Evrópskra Pírata 241. Sigríður María Egilsdóttir, varaþingmaður og stjórnarmeðlimur Viðreisnar 242. Lovísa Rósa Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar á Hornafirði, Sjálfstæðisflokki 243. Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Samfylkingunni 244. Þóra Magnea Magnúsdóttir, stjórnarmaður í VG, Reykjavík 245. Ásdís Bjarnadóttir, 4. sæti Miðfloknum Suðurkjördæmi 246. Ragnheiður Ríkharðsdóttir fv. þingmaður og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins 247. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, ritari stjórnar VG í Reykjavík 248. Margrét K. Sverrisdóttir fv. varaþingmaður Frjálslynda flokks og síðar borgarfulltrúi Samfylkingar 249. Herdís Hjörleifsdóttir, 7. sæti í Miðflokknum í Suðurkjördæmi 250. Sigríður Sólveig, grasrótin, Sjálfstæðisflokkurinn 251. Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar 252. Jórunn Einarsdóttir. fyrrum bæjarfulltrúi og varaþingmaður VG 253. Eva Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður fræðslunefndar í Mosfellsbæ og fyrrverandi varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins 254. Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir. borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina 255. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir. aðstoðarmaður félags-og jafnréttismálaráðherra og varaþingmaður Viðreisna 256. Jóna Björg Hlöðversdóttir. VG 257. Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar á Akranesi, Sjálfstæðisflokki 258. Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi Akranesi, Sjálfstæðisflokki 259. Anna Aurora Waage Óskarsdóttir Framkvæmtastjóri og í stjórn Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ 260. Bergljót Kristinsdóttir, formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi og varabæjarfulltrúi 261. Hildur Helga Gísladóttir formaður Kjördæmissambands framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi 262. Lilja Alfreðsdóttir, alþingiskona og varaformaður Framsóknarflokksins 263. Linda Hrönn Þórisdóttir, formaður Landssambands Framsóknarkvenna 264. Bjarnveig Ingvadóttir, Framsóknarflokkurinn, ritari Landsambands Framsóknarkvenna 265. Rakel Dögg Óskarsdóttir, Framsókn og flugvallarvinir 266. Elín Jóhannsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Framsóknarflokksins 267. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins 268. Vala Pálsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna 269. Elín Jónsdóttir, formaður sjálfstæðisfélagsins í Árbæ, selás og ártúni og meðlimur í stjórn Varðar 270. Hreindís Ylva Garðarsd. Holm, VG 271. Eygló Björg Jóhannsdóttir, formaður kjördæmasambands framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi 272. Gyða R. Stefánsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn 273. Gerður Pálsdóttir fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar, Samfylkingin 274. Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi, Björt framtíð 275. Aníta Rut Hilmarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn 276. Bryndís Bjarnadóttir, Sjálfstæðisflokkurinn 277. Margrét Pétursdóttir stjórnarkona í VG 278. Þórunn Sveinbjarnardóttir, fv. þingkona Samfylkingar 279. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi Borgarstjóri og þingkona Samfylkingar 280. Silja Rán Arnarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn 281. Erla Guðrún Gísladóttir. VG 282. Fríða Matthíasdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Sjálfstæðisflokkurinn. 283. Sirrý Hallgrímsdóttir, varaformaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna 284. Anna Sigrún Baldursdóttir, fyrrum aðstoðarmaður ràðherra, Samfylkingin 285. Andrea Eyland Sóleyjar- og Björgvinsdóttir fyrrverandi kosningastýra í Reykjavík. Samfylkingin. 286. Margrét Frímannsdóttir, Samfylking 287. Björg Eva Erlendsdóttir, Framkvæmdastjóri VG og fyrrv. stjórnarfulltrúi hér og þar 288. Andrea Gunnarsdóttir, stjórnarmeðlimur Sambands ungra Sjálfstæðismanna 289. Katrín Snæhólm Baldursdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Borgarahreyfingarinnar 290. Eydís Bára Jóhannsdóttir, formaður Framsóknarfélags Húnaþings vestra. 291. fv. formaður bæjarráðs og fv. stjórnarmaður í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Sjálfstæðisflokkurinn 292. Björk Guðjónsdóttir, fyrrv. forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og fv. alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. 293. Birgitta Jónsdóttir, fv. Þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar og Pírata 294. Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, stjórn ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. 295. Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki 296. María Grétarsdóttir, bæjarfulltrúi, FÓLKIÐ- í bænum, Garðabæ 297. Unnur Brá Konráðsdóttir, fv. forseti Alþingis og varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki 298. Hildur Margrétardóttir, formaður Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ og 2. varabæjarfulltrúi 299. Hólmfríður Garðarsdóttir, aðgerðarsinni víða, m.a. í Samfylkingu og með Kvennalista 300. Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Sjálfstæðisflokki 301. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins. 302. Bergþóra Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks, VG. 303. Nanna Kristín Tryggvadóttir, varamaður í miðstjórn, Sjálfstæðisflokki 304. Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna. 305. Guðrún M. Ó. Steinunnardóttir. Fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð. 1. Síðan ég byrjaði að starfa í pólitík hafa nokkrir menn úr stjórnmálaflokknum, og þá flestir giftir menn verið að senda mér skilaboð á kvöldin. Menn gera sér upp misjöfn tilefni til þess að hafa samband. Segjast vilja hjálpa mér ef mig vanti einhverja hjálp t.d. Ég velti því fyrir mér hvort að þeir vilji eiga inni hjá mér greiða eða hvort þeir séu að sýna að þeir séu valdameiri. Svo koma komment eins og: þú ferð nú í framboð er það ekki? Þú hefur allavega kinnbeinin í það. (já stelpur, þið sem eruð með kinnbein, drífið ykkur í framboð!) Svo hef ég líka fengið: þú ert nú með röddina í það, oh þessi rödd! Einn af þessum mönnum veit ég til að hefur verið að hafa samband við fleiri ungar konur í flokknum. Já ég er einhleyp, ung kona, en ég gekk ekki inn í stjórnmálastarf til þess að hafa ofan af fyrir giftum mönnum sem eru ef til vill orðnir leiðir á konunum sínum. 2. Ég var einu sinni í Finnlandi á UNR sem er Ungmenna þing Norðurlandaráðs sumsé þvert á alla flokka þegar ég mæti í kjól og hælum fyrir dinnerinn segir hann NEI loksins sexy og sæt kona í vinstri pólitík, sama kvöld talaði hann við nokkra aðra stráka um þetta og í hvert skipti sem ég og sænsk vinkona mín gengum nálægt honum þá þurfti hann að kommenta á útlit okkar. Óþolandi og gerði mig alltof meðvitaða um sjálfa mig, áttum svo eftir heilan dag af þinginu og ég meikaði bara ekki að tjá mig daginn eftir á fundinum. Annars á svipuðum event sat ég með nokkrum ungum konum af öllum flokkum þar sem var farið yfir hvaða þingmenn væru mestu perrarnir á þessum þingum. Það er því miður þannig að flestar af ungu konunum sem taka þátt í þessum þingum hafa lent í perraköllum og sumar hafa bara mjög grófar og ógéðslegar sögur. Margar hafa fengið beina hótun um að pólitískur ferill þeirra yrði bara ekki að neinu ef þær væru ekki til í að borga fyrir það einhvernveginn 3. Eftir umræðufund um málefni tengt Íraksstríðinu hélt hópurinn á bar og þar sem ég sat og ræddi við stjórnmálamenn tvo og einn vin þeirra um mál fundarins, fór vinurinn upp úr þurru að benda á hvað ég væri með fallega brjóstaskoru. Mér þótti þetta augljóslega óþægilegt og bað hann um að hætta þessu, en hann hélt áfram. Ég sat þarna klemmd á milli mannanna, enginn kom mér til varnar, ég fór. Hvað hafði eiginlega gerst, í miðri málefna umræðu var ég á svipstundu orðin hlutur í augum þriggja manna. Ég á fleiri svona sögur. 4. Er komin fram sagan af karlkyns borgarstjóranum sem fór með gamanmál í fjölmennri veislu í Viðey á vegum borgarinnar? Þar fjallaði hann um ,,gangtegundir” kvenna. Þær hafa nefnilega bara tvenns konar gang: frekjugang og yfirgang. Þetta var á þessari öld notabene. 5. Einn af upprennandi stjórnmálamönnunum er með margar „óstaðfestar“ sögur um áreitni gangvart ungum konum. Innan flokksins var gert mál úr þessu og reynt að láta hann sæta ábyrgð. Einhverjar konur gátu ekki hugsað sér að starfa með flokknum vegna þessa manns. Ekkert kom útúr málinu og maðurinn starfar í flokknum eins og ekkert hafi í skorist enda er svo rosalega dramatískt að hefta pólitískan feril ungs manns þrátt fyrir sögusagnir. 6. Ég er nýkjörin formaður í nýju kjördæmisfélagi flokks. Öflugt félag strax, fundarherferðir, umræður og stuð.... ýmsir karlmenn meika mig ekki og eru sífellt að reyna að skrúfa mig niður.. .. nokkrir ganga lengra, niðrandi komment og niðurrif, örfáir en fleiri en tveir, káf og tilraunir til að komast lengra.... Engum tókst en hafði þau áhrif að mig langaði ekki að vera í forystu...þeirra.... 7. Ég get ekki talið upp öll þau skipti sem mér hefur beint og óbeint verið hótað nauðgun vegna skoðana minna. Ég hef engan áhuga á að hafa það eftir, en ég hef oft lesið um allskonar hluti sem ég hefði gott af og hvernig væri nú best að þagga niður í mér. 8. Að taka þátt í prófkjöri var ávísun á að þurfa "þola" kossa, þukl og faðmlög frá flokksMönnum, helst með bros á vör, (annars myndu Þeir ekki kjósa þig). 9. Ég hef verið þátttakandi í pólitísku starfi allt frá menntaskólaárum. Ég hef oft orðið fyrir niðurlægjandi ummælum og framkomu sem beinlínis má rekja til þess að ég er kona, en ég hef ekki orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í störfum mínum í nefndum, í framboði, í borgarstjórn, á alþingi eða í ráðuneyti. Það er ástæðan fyrir því að ég skrifaði ekki undir áskorunina en sé svo að það hafa nokkrar gert, sem eins er ástatt um. En utan hins pólitíska vettvangs - bæði í vinnu og í skemmtanalífi hef ég lent í alls konar - eins og sagt er.
Tengdar fréttir Íslenskar konur í stjórnmálum segja af áreitni og ofbeldi kollega Hundruð hyggjast stíga saman fram, deila reynslu sinni og kalla eftir breytingum. 21. nóvember 2017 14:45 Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Innlent Hótaði heimilismönnum með skærum Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Erlent Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Innlent „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Innlent Fleiri fréttir Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Káfaði á konu á salerni skemmtistaðar Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík „Ekki rólegur með hraunið ofan á“ Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Glóðvolg könnun og hraun rennur enn á ný Gandri fær grænt ljós Sjá meira
Íslenskar konur í stjórnmálum segja af áreitni og ofbeldi kollega Hundruð hyggjast stíga saman fram, deila reynslu sinni og kalla eftir breytingum. 21. nóvember 2017 14:45