Jólaspá Siggu Kling - Krabbinn: Getur breytt einföldum hlutum yfir í stórkostlega 1. desember 2017 09:00
Elsku Krabbinn minn! Það er alveg hægt að segja þú búir yfir meiri orku en góður spretthlaupari, en það er samt alltaf betra fyrir þig að taka lífið í sprettum og ekki hugsa of langt fram í tímann því það flækir bara lífið þitt, því núna er NÚNA! Þú ert svo klár, skýr og ástríðufullur fyrir því sem þú ert að gera. Þú skreytir veisluborðið á svo mun betri máta en flestir aðrir, og þá er ég aðallega að meina í orðum og tilfinningum - og alls ekki spara orðin eða einlægnina, því það er það sem kemur þér langt. Þú átt marga aðdáendur, fleiri en þú gerir þér grein fyrir og svo marga sem vilja þér vel, svo ef þú þarft á hjálp að halda þarftu bara að biðja um hana. Þú átt svo sannarlega eftir að njóta lífsins í desember, átt eftir að finna hvernig þú getur breytt einföldum hlutum yfir í stórkostlega og svo miklu betur en aðrir geta. Margir í kringum þig myndu brenna upp á stuttum tíma undir sömu kringumstæðum, en þú hefur kraft á við hundrað manns. Mundu bara að þú ert spretthlaupari og krafturinn kemur til þín ef þú hugsar ekki of langt fram í tímann. Þú hefur sérstaka tælitækni eins og kötturinn sem fær sínu framgengt, svo það er mikilvægt fyrir þig að daðra við alla, því daður er fegurð hvort sem þú daðrar við dýr, gamalt fólk eða hvað sem er, hvort sem það er í búðinni sem þú verslar í eða partýinu sem þú ert í. Sýndu öðrum einlægan áhuga, því þar með ertu kominn á kortið, alveg sama hvað persónan gerir eða hver hún er. Þér mun bjóðast að gera eitthvað óvænt sem þér finnst jafnvel alveg út úr kortinu og langt út fyrir þægindarammann þinn, en segðu bara já og láttu þig vaða út í eitthvað sem þú bjóst aldrei við þú myndir þora. Þá sérðu svo skýrt hversu margbreytilegur persónuleiki þú ert og hefur miklu meiri tök á lífinu en þú gerðir þér grein fyrir. Þú skalt elska hvatvísi þína næstu mánuði og sérstaklega núna í desember, því það er einhvern veginn þannig að þú munt veðja á rétta hluti og allt mun ganga upp!Frægir Krabbar: Bryndís Schram, Sigga Lorange Ostabúðarskvísa, Auddi Blö, sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari, Davíð hinn góði skóari í Hafnafirði, Stefán Árni Pálsson fréttamaður, Guðni Th. forseti Íslands, Friðbjörn Europartakóngur, Yesmine Olsen, höfundur og framleiðandi, George Michael, Kristófer Helgason, dagskrágerðamaður, Nuno Alexandre Bentin Servo veitingahúsakóngur, Helga Hafsteinsdóttir, hárgreiðsluséní á Akureyri. Setningin þín er: Taktu þetta í einum spretti eins og Rocky Balboa, eða Sylvester Stallone hinn frábæri Krabbi – Rocky Balboa Theme Song
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó Lífið Er alltaf hrædd Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Lífið Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Lífið Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Lífið Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Lífið Fleiri fréttir Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Sjá meira