Clattenburg leyfði Tottenham mönnum að tortíma sjálfum sér í frægum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2017 17:30 John Terry vildi frá rauð spjöld á loft á leikmenn Tottenham en það var ekki á dagskrá hjá Mark Clattenburg, Vísir/Getty
Mark Clattenburg, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, hefur tjáð sig um eftirminnilegan leik á milli Tottenham og Chelsea í maí 2016 þar sem Tottenham-liðið missti Englandsmeistaratitilinn endanlega til Leicester City. Tottenham gerði þá 2-2 jafntefli við Chelsea en hefði þurft að vinna leikinn til að eiga ennþá möguleika á titlinum. Leicester fagnaði titlinum þetta kvöld án þess að spila. Mark Clattenburg ræddi leikinn í viðtali í Men in Blazers vefþættinum þar sem Íslandsvinirnir voru með dómarann í viðtali. BBC segir frá. Þetta var ótrúlegt kvöld þar sem níu leikmenn Tottenham fengu gult spjald og bæði félög voru sektuð fyrir framkomu sinna leikmanna. Clattenburg sagði að sitt leikplan þetta kvöld hafi verið að forðast það eins og heitann eldinn að honum yrði kennt um það að Tottenham missti af titlinum. „Ég leyfði Tottenham mönnum að tortíma sjálfum sér svo allir fjölmiðlar heimsins myndi slá því upp að Tottenham hafi tapað titlinum,“ sagði Mark Clattenburg. „Ef ég hefði rekið þrjá leikmenn Tottenham af velli þá hefðu fyrirsagnirnar verið: Tottenham tapaði titlinum útaf Clattenburg. Þetta var hrein leiksýning þegar leikmenn Tottenham tortímdu sjálfum sér,“ sagði Mark Clattenburg. „Einhverjir dómarar hefðu eflaust farið eftir bókinni og Tottenham hefði í framhaldinu endað með sjö eða átta menn inn á vellinum. Þeir voru að leita sér að afsökun en ég ætlaði ekki að gefa þeim hana. Mitt plan var að leyfa þeim sjálfum að tapa titlinum,“ sagði Clattenburg. Mark Clattenburg náði magnaðri þrennu þetta sumar því hann dæmdi úrslitaleik ensku bikarkeppninnar, úrslitaleik Meistaradeildarinnar og úrslitaleik Evrópukkeppninnar í Frakklandi. Hann hætti að dæma í ensku úrvalsdeildinni í febrúar og gerðist í staðinn yfirmaður dómara í Sádí Arabíu.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira