Góð endurkoma dugði ekki til hjá Alfreð og félögum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 13. desember 2017 21:15 Alfreð í leik með Augsburg. Vísir/Getty Alfreð Finnbogason og félagar í þýska liðinu Augsburg urðu að sætta sig við 3-2 tap gegn Schalke í kvöld. Schalke komst í 2-0 í leiknum en Augsburg náði að jafna. Schalke skoraði svo sigurmark einni mínútu fyrir leikslok. Alfreð var í byrjunarliði Augsburg sem fyrr en fór af velli á 72. mínútu. Robert Lewandowski tryggði Bayern 1-0 sigur á Köln og Werder Bremen varð að sætta sig við 1-0 tap gegn Bayer Leverkusen. Þýski boltinn
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“