Gylfi og félagar töpuðu fyrir Bournemouth Dagur Lárusson skrifar 30. desember 2017 17:00 Gylfi Þór Sigurðsson Vísir/Getty Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton töpuðu fyrir Bournemouth 2-1 þar sem Ryan Fraser skoraði tvö mörk fyrir Bournemouth Það voru heimamenn í Bournemouth sem voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og náðu þeir að skora á 33.mínútu en þar var að verki Ryan Fraser og var staðan 1-0 í leikhlé. Gestirnir mættu ákveðnir til leiks í seinni hálfleiknum og náðu strax að jafna leikinn á 57. mínútu en þar var á ferðinni Idrissa Gueye eftir varnamistök hjá leikmanni Bournemouth. Bournemouth hélt þó áfram þrátt fyrir jöfnunamark Everton og náði forystunni á nýjan leik á 88. mínútu en þá skoraði Ryan Fraser aftur og tryggði heimamönnum sigurinn. Eftir leikinn er Everton í 9.sæti með 27 stig á meðan Bournemouth er í 13.sæti með 20 stig. Enski boltinn
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport