Lífið

Svona lítur drengurinn úr Elf út í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daniel Tay með Ferrell árið 2003.
Daniel Tay með Ferrell árið 2003.
Jólamyndin Elf kom út árið 2003 og er hún enn í dag mjög vinsæl. Will Ferrell fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni en hann leikur álfinn Buddy sem fer til New York til að leita að líffræðilegum föður sínum.

Leikkonan Zooey Deschanel steig einnig sín fyrstu skref í leiklistinni í myndinni en Daniel Tay var aðeins 12 ára þegar hann lék hlutverk Michael, bróðir Buddy, og eru liðin fjórtán ár síðan hann kom fram í kvikmyndinni.

Inni á vefsíðunni Viral Thread má sjá hvernig Tay lítur út í dag en hann er orðinn 26 ára og hefur eðlilega breyst töluvert eins og sjá má hér að neðan.

Daniel Tay er 26 ára í dag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×