Lífið

Falleg íslensk heimili: Glæsilegt einbýlishús á Akureyri með útsýni út Eyjafjörðinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einstaklega falleg eign.
Einstaklega falleg eign.
Í glæsilegu húsi við Krókeyranöf á Akureyri býr María Bergþórsdóttir og fjölskylda. Hjónin byrjuðu að byggja húsið árið 2009 og fluttu síðan inn tveimur árum síðar. Arkitektinn Fanney Hauksdóttir teiknaði húsið.

Húsið er tæplega þrjú hundruð fermetrar. Naustahverfið er nýjasta íbúðarhverfið á Akureyri. Það er kennt við jörðina Naust og liggur sunnan við meginbyggðina á Brekkunni og útundir Kjarnaskó.

Flöt þök og hrein form einkenna mörg hús í hverfinu og minna þau sumpart fúnkíshúsin sem algeng voru á Akureyri á fjórða áratugnum. Í síðasta þætti af Fallegum íslenskum heimilum var farið til Akureyrar.

Þar fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.

 


Tengdar fréttir

Strákarnir áttu keppnina

Helgi Ómarsson, fyrirsæta og ljósmyndari, er Eurovision-nörd og fylgdist að sjálfsögðu með keppninni í fyrrakvöld. Hann er tapsár og finnst súrt að Svala hafi dottið úr keppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.