Fargjaldatekjur Strætó jukust um 10 prósent milli ára Atli Ísleifsson skrifar 7. mars 2017 09:07 Handbært fé hækkaði um 393 milljónir króna á árinu og var í lok árs um 907 milljónir króna. vísir/vilhelm
Fargjaldatekjur Strætó á árinu 2016 námu 1,82 milljarðar króna og hækkuðu um 165 milljónir króna milli ára eða um 10 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó. Rekstrarafkoman var jákvæð um 180 milljónir króna og 156 milljónir hærri en árið 2015. Er þetta áttunda árið í röð sem afkoma fyrirtækisins sé jákvæð. „Heildarrekstrarkostnaður almenningsvagna og leiðakerfis voru um 46 m.kr. undir áætlun. Kostnaður við eigin akstur var heldur lægri en gert var ráð fyrir, sem skýrist af lægri kostnað við viðhald, varhluti og minni olíunotkun. Ráðist var í um 300 m.kr. fjárfestingum á fjórum rafmagnsvögnum og búnaði tengdum þeim sem koma til landsins í júní. Jafnmframt er fyrirhugað að fjárfesta fyrir um 300 m.kr. í kaup á nýjum vögnum árið 2017 og einnig setja um 40 m.kr. í frekari uppbyggingu í upplýsingatækni og rafrænum lausnum. Handbært fé hækkaði um 393 m.kr. á árinu og var í lok árs um 907 m.kr.,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Jóhannesi Rúnarssyni, framkvæmdastjóra Strætó, að hann sé ánægður með árangurinn sem náðist á síðasta ári. „Þetta er uppskera þeirra aðgerða sem við fórum í. Við skárum niður um rúmar 250 milljónir og þurftum að velta við hverjum steini og finna leiðir til að nýta fjármagnið betur. Við erum einbeitt að því markmiði að gera betur og einfalda þjónustu okkar. Árið 2017 snýst um að halda áfram þeirri vinnu sem við lögðum grunninn að á síðasta ári og huga að framtíðarsýn okkar. Við munum halda áfram að þróa rafrænar lausnir og að nýta okkur þá tækni sem við höfum fjárfest í til þess að slípa verklag og einfalda þjónustu fyrir farþega Strætó,“ segir Jóhannes.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent „Play verður áfram íslenskt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira