Brasilíska fyrirsætan Gisele Bündchen kom eiginmanni sínum, NFL-stjörnunni Tom Brady, í bobba með viðtali sem birt var á CBS í gær.
Þar sagði Gisele að Brady hefði fengið heilahristing á síðasta ári og að hann fengi heilahristing á hverju ári.
Samkvæmt gögnum NFL þá hefur Brady aldrei fengið heilahristing en slík meiðsli eru tekin mjög alvarlega í deildinni. Þeir sem fá heilahristing þurfa að gangast undir skoðanir og síðan fá leyfi til þess að spila á nýjan leik.
Forráðamenn NFL-deildarinnar hafa því haft samband við leikmannasamtök deildarinnar til þess að rannsaka þetta mál.
Eiginkona Brady kjaftaði af sér
Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Mest lesið

„Held áfram nema ég verði rekinn“
Körfubolti


Mateta líður vel þrátt fyrir tæklingu í andlitið
Enski boltinn

Borche: Dómararnir sjá það sem þeir sjá
Körfubolti


Kári: Bara negla þessu niður
Körfubolti




Fleiri fréttir
