Eldfjöll, skjalafals og langir göngutúrar Stefán Þór Hjartarson skrifar 3. október 2017 10:45 Werner Herzog hefur nokkrum sinnum komið til Íslands áður, hann hélt til að mynda á Konungsbók á áttunda áratugnum. Vísir/Anton Brink
Into the Inferno er nýjasta mynd Herzogs og því fjallar fyrsta spurningin um eldfjöll og hvað það sé við þau sem heilli hann svo mikið. „Eldfjöll hafa heillað mig mjög lengi. Árið 1976 gerði ég myndina La Soufrière á eyjunni Guadeloupe og hún fjallaði um gríðarlega hættulegt ástand sem ríkti þar á þeim tíma. Það er gríðarlegur kostur við eldgos að þar birtist hrikalegur náttúrulegur kraftur sjónrænt og það er alls ekki hægt að hunsa hann sé maður kvikmyndagerðarmaður. Við gerð Into the Inferno notaði ég svipmyndir sem ég fékk á Íslandi, frá Eyjagosinu. Það gos var mjög vel fest á filmu og var auðvitað gjörsamlega meiriháttar. Ótrúlegt að beint fyrir aftan húsið manns opnist logandi sprunga – það er mjög öflugt myndefni.“ Hann talar um Into the Inferno og við ræðum stuttlega um Konungsbók í tengslum við það hvernig menning, trú og eldfjöll geta tengst. „Á áttunda áratugnum, stuttu eftir að Konungsbók hafði verið skilað aftur til Íslands, fékk ég að halda á henni – og allir í Reykjavík vissu af því á innan við tíu mínútum!“Skjalafals órjúfanlegur hluti kvikmyndagerðar Meðal námskeiða sem Werner Herzog kennir við Werner Herzog‘s Rouge Film School eru meðal annars skjalafals, það að dýrka upp lása og íþróttir kvikmyndagerðarinnar. Herzog segist glottandi afgreiða þessi námskeið á stuttum tíma í byrjun annar. En hann verður síðan alvarlegur þegar skjalafals berst í mál. „Fitzcarraldo – þar sem ég flyt skip yfir fjall – hefði aldrei orðið að veruleika ef það væri ekki fyrir umtalsvert skjalafals. Ástæðan fyrir því er sú að á þeim tíma var einræði í landinu, herforingjastjórn, og ég fékk ekki að færa skipið. Ég lagði því fram fjögurra blaðsíðna leyfi fyrir þessum umsvifum og því fylgdi meira að segja undirskrift frá forseta Perú. Ég sjálfur útbjó auðvitað öll þessi skjöl og falsaði meira að segja undirskrift forsetans. Þetta eru nauðsynlegir hæfileikar til að komast fram hjá kerfinu. Kerfið býður ekki kvikmyndagerðarfólki að stunda list sína og raunar er kerfið og bjúrókrasían náttúrulegur óvinur kvikmyndagerðarmannsins. Það er mjög nauðsynlegt að vera klárari en skrifræðið og kunna að nýta sér ákveðin glæpsamleg öfl – án þess að nokkur meiðist. Það er markmiðið – þú ferð á svig við kerfið, þú ferð á svig við herforingjastjórnina og enginn meiðist. Til þess þarf að kunna að falsa eigin skjöl meðal annars – kvikmyndagerðin veltur á því og það er náttúrulegur réttur listamannsins, náttúrulegur réttur ljóðskáldsins.“ Náttúrurétturinn minnti á söguna af Herzog þar sem hann fékk „lánaða“ myndavél úr Institute for Film Research í München. Hann segir að stofnunin hafi haft það hlutverk að lána út vélarnar til upprennandi kvikmyndagerðarmanna en hafi ekki viljað lána honum vél af einhverri ástæðu og því hafi hann bara tekið vélina. Ætlunin hafi allan tímann verið að skila henni. „Þegar ég var búinn að skjóta fyrstu myndina kom sú næsta, svo sú næsta og svo koll af kolli. Ég áttaði mig á því að enginn tók eftir því að vélin var horfin. Sjálft hlutverk myndavélarinnar var að þjóna fólki eins og mér – svo að það var auðvitað náttúrulegur réttur minn að skjóta á hana kvikmyndir.“Lesið bækur Nokkur ráð fyrir unga kvikmyndagerðarmenn: „Lesið. Ferðist fótgangandi. Ferðist frá Madríd til Kíev eða frá Boston til Gvatemalaborgar. Það margborgar sig og er mikið betra en fjögur ár í kvikmyndaskóla. Haltu þig við eigin hugsjón því að það er engin ástæða til að hræðast nokkurn skapaðan hlut.“ Ég spyr hann hvað hann sé að lesa þessa dagana og hann segir mér að hann sé mest að lesa ljóð en fyrir utan það sé það aðallega „pragmatískur lestur“ á hnausþykkri endurminningabók Gorbatsjevs og tæknilegir hluti um Sovétríkin vegna næsta verkefnis síns sem hann hefur verið að vinna í Moskvu þaðan sem hann flaug beint til Íslands. Áður en blaðamaður nær að spyrja hann betur út í það verkefni lýkur viðtalinu skyndilega þegar honum er tilkynnt að hann verði að hendast yfir í næsta stopp. Áður en hann fer staldrar hann þó við og talar eilítið um internetið og hvernig ungt fólk, mengi sem blaðamaður fellur undir, verði að vara sig á ýmsum fölskum staðreyndum sem þar er að finna. Blaðamaður getur ekki annað en tekið undir það.
RIFF Mest lesið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp „Ég var alltaf systir bræðranna sem dóu, dóttir bæjarstjórans eða dóttir ráðherrans“ Áskorun Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Lífið Fleiri fréttir Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr hryllingstrylli af Vestfjörðum Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Emilia Pérez og The Bear með flestar tilnefningar til Golden Globe „Hversu góð tök hefur þú á Rúrik?“ Barry Keoghan leikur Bítil Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Sjá meira