Lífið

Vonar að fólk borði upp sýninguna

Guðný Hrönn skrifar
Sýning Andreu er hluti af mastersverkefni hennar í hagnýtri menningarmiðlun við HÍ.
Sýning Andreu er hluti af mastersverkefni hennar í hagnýtri menningarmiðlun við HÍ. vísir/ernir
Listakonan og háskólaneminn Andrea Arnarsdóttir opnar í dag sýninguna Ofgnótt þar sem 18 kíló af sælgæti eru í aðalhlutverki. Sýningin, sem er sett upp á Háskólatorgi í Háskóla Íslands, er eins konar sælgætisveisla þar sem Andrea hefur raðað sælgætinu vandlega upp á hlaðborð og gestum og gangandi er velkomið að smakka á verkinu.

En af hverju 18 kíló? „Samkvæmt tölum sem koma frá landlæknisembættinu þá er þetta sælgætisframboðið fyrir hvern Íslending á ári að meðaltali.“

Spurð út í hvort hún sjálf sé nammigrís og hvort hún hafi ekkert freistast til að narta í efnivið sýningarinnar segir Andrea:

„Ég hef ekki stolist í þetta nammi en ég valdi nammi sem mér finnst ekkert rosalega frábært. En jú, ég er alveg nammigrís. Ég er samt búin að vera að reyna að minnka nammiátið í dálítinn tíma.“

Sýning Andreu byggir á upplýsingum um sælgætisát landsmanna og líka á sögu sælgætis en Andrea hefur rannsakað nammi í sögulegu samhengi undanfarið.

Ekkert mál ef nammið klárastEins og áður sagði er fólki velkomið að borða nammið úr verkinu. Sýningin stendur yfir í viku og spurð út í hvað gerist ef fólk klárar allt sælgætið á t.d. einum degi segir Andrea það ekki vera neitt mál. „Þá verður bara tómt hlaðborð til sýnis,“ segir hún og hlær. „En fólk má alveg endilega fá sér nammi og það væri bara frábært ef við myndum ná að borða upp einn Íslending á þessari viku sem sýningin er í gangi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.