Bíó og sjónvarp

Hjartasteinn vinnur EUFA verðlaunin og hefur nú unnið til 45 alþjóðlegra verðlauna

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hjartasteinn hefur unnið fjölmörg alþjóðleg verðlaun.
Hjartasteinn hefur unnið fjölmörg alþjóðleg verðlaun.
Tilkynnt hefur verið að Hjartasteinn, kvikmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar, mun hljóta EUFA verðlaunin í ár. EUFA verðlaunin verða afhent í Berlín á morgun, 8. desember, og mun Guðmundur Arnar leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar verður viðstaddur verðlaunaafhendinguna. EUFA verðlaunin eru á vegum Evrópsku Kvikmyndaakademíunnar, Kvikmyndahátíðarinnar í Hamburg og Kvikmyndaverðlauna Quebec Háskóla, í samstarfi við Evrópsku kvikmyndaverðlaunin. 

Af þeim 66 kvikmyndum sem voru í forvali fyrir Evrópsku kvikmyndaverðlaunin voru fimm þeirra tilnefndar til EUFA verðlaunanna í ár. Myndirnar fimmvoru sýndar og ræddar í 20 háskólum í 20 Evrópulöndum og í kjölfarið komst hver skóli að niðurstöðu um hver væri besta myndin að þeirra mati. Þetta er annað árið sem EUFA verðlaunin fara fram. Í fyrra vann hin margverðlaunaða kvikmynd Ken Loach, I, Daniel Blake, til verðlaunanna.

Myndin Hjartasteinn var nýlega valin besta LGBT kvikmyndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cape Town í Suður Afríku, vann áhorfendaverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Ljubljana í Slóveníu, vann dómnefndarverðlaun á Chéries-Chéris kvikmyndahátíðinni í Frakklandi og var valin besta myndin á Cinedays – hátíð evrópskra kvikmynda í Skopje í Makedóníu. Auk þess vann hún áhorfendaverðlaun og dómnefndarverðlaun ungmenna á Du grain à démoudre kvikmyndahátíðinni í Frakklandi.

Hjartasteinn vann níu Edduverðlaun í febrúar og hefur nú einnig unnið 45 alþjóðleg verðlaun. 


Tengdar fréttir

Hjartasteinn valin á stuttlista LUX

Hjartasteinn, hin margverðlaunaða mynd Guðmundar Arnar Guðmundssonar, hefur verið valin á stuttlista LUX Film Prize sem er verðlaunahátíð á vegum Evrópuþingsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.