Tottenham og Burnley skildu jöfn á Wembley

Elías Orri Njarðarson skrifar
Dele Alli skoraði fyrir Tottenham í dag
Dele Alli skoraði fyrir Tottenham í dag vísir/getty
Tottenham og Burnley gerðu 1-1 jafntefli á Wembley í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Staðan var markalaus þegar að blásið var til loka fyrri hálfleiks.

Strax þegar að fjórar mínútur voru búnar af síðari hálfleiknum skoraði enski miðjumaðurinn, Dele Alli, fyrir Tottenham eftir vandræðargang í vörn Burnley.

Það leit allt út fyrir að Tottenham væri að fara að sigla sigrinum heim en Chris Wood, sem gekk í raðir Burnley frá Leeds á dögunum, var ekki á sama máli og jafnaði metin þegar að tvær mínútur voru búnar af uppbótartímanum.

Niðurstaðan var því 1-1 jafntefli en leikmenn Tottenham mega svekkja sig á þessum úrslitum. Eftir leikinn situr Tottenham í níunda sæti deildarinnar með fjögur stig en Burnley í sætinu fyrir neðan einnig með fjögur stig.



Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira