Tónlist

Tjörnes frumsýnir nýtt myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hörður og Pétur mynda saman sveitina Tjörnes.
Hörður og Pétur mynda saman sveitina Tjörnes.
Hljómsveitin Tjörnes er tveggja manna sveit skipuð Herði Bjarkasyni og Pétri Finnbogasyni en Tjörnes frumsýnir í dag nýtt myndband á Vísi.

„Við erum búnir að spila í mjög langan tíma saman bæði í ballhljómsveit og sem trúbadorar. Það hefur lengi verið draumur hjá okkur báðum að gefa út hressa, skemmtilega og dansvæna tónlist. Út frá þessu þurftum við nafn á samstarfið okkar,“ segir Pétur Finnbogason.

Af hverju Tjörnes?

„Við höfum lengi grínast með nafnið þar til að það vandist svona vel. Tjörnes er einnig merkilegur staður á Íslandi sem hefur að geyma hin 500 metra þykku sjávarsetlög, Tjörneslögin. Hinsvegar er nafn hljómsveitarinnar komið frá ömmu minni en hún talaði alltaf um strákapjakka sem Tjörnes þannig við byrjuðum að tala um okkur sem trúbadorana Tjörnes&Bernes.“

Lagið ber nafnið Örlítið salsa og er það samið af þeim báðum en textinn er eingöngu saminn af Herði.

Pétur var í Bláum Ópal sem keppti með laginu Stattu Upp í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012 og lenti í 2. sæti. Hann stofnaði ballhljómsveitina Bandmenn árið 2015. Hörður er saxafónleikari og er einnig í sveitinni Bandmenn.

Arnar Hugi Birkisson sá um leikstjórn, klippingu og upptöku myndbandsins. Pétur Geir Magnússon fer með aðalhlutverkið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.