Innlent

Bein útsending: Gestir á há­tíðar­kvöld­verði til heiðurs for­seta Ís­lands í Amalíu­borgar­höll

Ritstjórn skrifar
Hátíðarmóttaka forseta Íslands í boði Margrétar Þórhildar drottningar Danmerkur og Hinriks prins hefst í kvöld klukkan 18.10.

Sýnt verður frá henni í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi en Heimir Már Pétursson, fréttamaður Stöðvar 2, er á staðnum og tekur á móti gestum.

Glamour verður einnig í beinni útsendingu hér á Vísi þar sem við fylgjumst með gestunum mæta á móttökuna og munum jafnvel taka út klæðaburð þjóðhöfðingjanna í þessari fyrstu opinberu heimsókn Guðna Th Jóhannessonar og eiginkonu hans, Elizu Reid.

Nánar verður fjallað um þessa sögulegu hátíðarmóttöku í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast að vanda á slaginu 18.30.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×