Lífið

Ariana Grande gerð að heiðursborgara í Manchester

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ariana Grande hefur gengið í gegnum margt undanfarnar vikur.
Ariana Grande hefur gengið í gegnum margt undanfarnar vikur. Lauren Thorpe
Helstu listamenn heims komu fram á styrktartónleikum Ariönu Grande í Manchester á dögunum og var það söngkonan sjálf sem skipulagði tónleikana.

22 létust og tugir særðust í hryðjuverkaárás í borginni á dögunum en tónleikarnir á sunnudaginn fóru fram á krikketvellinum Old Trafford í Manchester og var pláss fyrir 50.000 manns.

Nú hefur verið ákveðið að gera Ariönu Grande að heiðursborgara í Manchester en það er BBC sem greinir frá málinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.