Innlent

Missa af mikilvægum stundum í lífi sínu

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Í fyrra vann Snædís Rán Hjartardóttir mál gegn stjórnvöldum, því hún fékk ekki túlkaþjónustu frá Samskiptamiðstöð þar sem túlkasjóðurinn var tómur og því þurfti hún sjálf að greiða fyrir þjónustuna.

Í kjölfarið fóru sjö einstaklingar, sem höfðu ekki heldur fengið túlkaþjónustu, fram á miskabætur. Aðeins tveir fengu þó bætur, þeir sem höfðu sjálfir lagt út fyrir þjónustunni. Hinir fimm höfðu ekki haft ráð á því og þar af leiðandi misst af viðburðinum þar sem þeir þurfti túlkun.

Snædís er formaður Fjólu, félags fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Hún segir ótækt að miskabætur séu metnar út frá getu einstaklinga til að leggja sjálfir út fyrir túlkaþjónustu.

Hún segir einnig að lítið hafi breyst í túlkjaþjónustunni þrátt fyrir að hafa unnið málið. Áður hafi fólk ekki fengið túlk því það var ekki til peningur. Nú fái fólk ekki túlk því það er enginn laus túlkur.

„Mig grunar að það sé bara búið að aðlaga skipulagið betur að fjármagni frekar en að auka framboðið af þjónustu. En hins vegar er ekkert búið að reyna að skilgreina réttinn til þjónustunnar. Hvernig á maður að berjast fyrir þjónustu þegar maður veit ekki hver réttur manns er?“ spyr Snædís.

Einungis túlkaþjónusta vegna menntunar og heilbrigðisþjónustu er lögbundin en ekki vegna félagsstarfa. Systir Snædísar, sem einnig er með sjón- og heyrnarskerðingu, fékk að vita daginn fyrir útskriftarveislu sína að hún fengi engan túlk, þrátt fyrir að hafa pantað þjónustuna með góðum fyrirvara. Það varpaði stórum skugga á útskriftardaginn.

Snædís segir mikilvægt að skilgreina þjónustuna betur svo fólk missi ekki af mikilvægum stundum í lífi sínu.

„Það er kannski hægt að bæta við peningum en það er skammtímalausn. Við vitum að verðbólga hér étur upp öll aukafjárlög á endanum. Það sem skiptir mestu máli er að binda þetta í lög þannig að það verði skýrt til hvers rétturinn er. Frekar en að tengja hann bara við peningana sem eru til hverju sinni,“ segir Snædís. 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×