Innlent

Lúsin líka óboðinn gestur í Verzló

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lúsin er mætt í Verzló og MR.
Lúsin er mætt í Verzló og MR. Vísir/Vilhelm
Menntaskólinn í Reykjavík er ekki eini framhaldsskóli landsins sem glímir við hinn óboðna gest lúsina heldur er lúsin sömuleiðis mætt í Verzlunarskóla Íslands.

Nemendur úr Verzló hafa haft samband við fréttastofu og gert athugasemdir við að vandinn beinist ekki aðeins að MR, sem kalla mætti erkifjendur Verzló, heldur einnig þeirra skóla. Má telja líklegt að vandamálið sé að finna í fleiri framhaldsskólum.

Fréttastofu barst póstur frá nemanda í Verzló sem vildi ekki láta nafns síns getið. Sendur var út póstur til foreldra í síðustu viku vegna málsins.

„Fyrir hönd Verzlunarskóla Íslands vil ég benda á að það er einnig lús að ganga í VÍ og okkur sárnar mjög að sjá að okkar lúsagangur fékk ekki að rata í fréttirnar. Vona að þið bætið úr þessu sem fyrst,“ segir nemandinn sem vill ekki koma fram undir nafni. Vandamálið mun hafa staðið yfir í nokkurn tíma í Ofanleiti.

Lúsin er fastagestur í upphafi skólaárs og eftir frí í leikskólum og grunnskólum landsins en óalgengara er að hún mæti í framhaldsskólana, þó það sé ekki óþekkt. Svo virðist sem hún sé í töluverðri dreifingu núna þar sem Vísi hafa einnig borist ábendingar um lús í leikskólum og grunnskólum það sem af er ári.

Rétt er minna á að lús er ekki merki um sóðaskap og allir geta smitast af henni þó smit sé algengast hjá börnum á aldrinum þriggja til ellefu ára. Hún er ekki talin bera með sér neina sjúkdóma og besta ráðið við henni er að kemba hárið. Nánar um það hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×