Fram kemur á vef TMZ að tölvuhakkarar hafi brotist inn á Instagram-síðu tónlistarkonunnar Selena Gomez og í kjölfarið birtist frægar nektarmynd af Justin Bieber.
Gomez og Bieber voru einmitt á sínum tíma par og eiga mikla sögu. Með myndinni stóð: „Sjáið þið rækjuna á þessum?“
Gomez var ekki lengi að bregðast við og fjarlægja myndina.
Nektarmyndir af Justin Bieber birtust á Instagram-síðu Selena Gomez
Stefán Árni Pálsson skrifar
