Innlent

Tilfinningaþrungin stund þegar fyrrverandi sjómaður hitti bjargvætt sinn aftur: "Þú hefðir gert það sama fyrir mig“

Nadine Guðrún Yaghi og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Fyrrverandi sjómaður frá Belgíu hitti bjargvætt sinn, fyrrverandi slökkviliðsmann í Vestmannaeyjum, í fyrsta skipti í dag, en sá síðarnefndi bjargaði lífi hans eftir að belgískur togari strandaði í Vestmannaeyjum fyrir um 35 árum. Belgíumaðurinn Bart Gulpen var aðeins 17 ára þegar hann horfðist í augu við dauðann í um sjö klukkustundir, þegar togarinn, Pelagus, strandaði í hrauninu í Vestmannaeyjum í janúar árið 1982.

Hann var hættur að finna fyrir fótunum af kulda þegar Guðmundur Ólafsson, 23 ára slökkviliðsmaður frá eynni, náði að koma honum til bjargar á ögurstundu. Fimm félögum Barts var bjargað en tveir úr áhöfn togarans létu lífið. Einnig fórust íslenskur læknir og hjálparsveitarmaður en óhætt er að segja að þetta hafi verið einn dramatískasti atburður í björgunarsögu Íslendinga.

Kom þeim á óvart

Bart er nú er kominn hingað til lands í tilefni af útgáfu nýjustu Útkallsbókar Óttars Sveinssonar sem fjallar um þessa atburði.  Bart vissi hins vegar ekki að Guðmundur er einnig komin hingað, frá Norður Noregi þar sem hann býr í dag, en Óttar ákvað að leiða þá óvænt saman. 

Skjáskot/Stöð2
Stundin var nokkuð tilfinningaþrungin enda hafa þeir í raun aldrei talað saman, ekki fyrr en í dag, en lifað með þennan sorglega atburð í huga öll þessi ár. Báðum fannst þeim magnað að hitta hvorn annan og voru þakklátir fyrir það tækifæri. Þá segjast þeir báðir hafa hugsað um atburðinn margoft á þeim 35 árum sem eru liðinn frá honum. Guðmundur var hógvær þegar þeir hittust og sagði: 

„Þú hefðir gert það sama fyrir mig“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×