Innlent

Skilur ekki af hverju álitamál um kjörgengi endar hjá forsætisnefnd

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir. Vísir/valli
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi segir óskiljanlegt að umræða um kjörgengi Kristínar Soffíu Jónsdóttur fari fram á forsætisnefndarfundum borgarstjórnar en ekki á borgarstjórnarfundum. Fréttablaðið hefur greint frá því undanfarið að vafi leiki á kjörgengi borgarfulltrúans og óskað hafi verið eftir lögfræðiálitum frá tveimur aðilum vegna þess.

Sveinbjörg Birna spurðist fyrir um málið á borgarstjórnarfundi í fyrradag. „18. október 2017 birtist frétt í Fréttablaðinu þar sem sagt var frá vafa um kjörgengi borgarfulltrúans Kristínar Soffíu Jónsdóttur, en deginum áður 17. október hafði hún setið fund borgarstjórnar. Ekkert var rætt um vafa á kjörgengi hennar í sal borgarstjórnar. Ekki er að sjá í fundargerðum forsætisnefndar að neinar umræður hafi farið þar fram um kjörgengi hennar og fyrst er að sjá það í fundargerð 23. október 2017,“ segir Sveinbjörg.

Sveinbjörg segir að verkefni forsætisnefndar séu tiltekin í samþykkt hennar. „Ekki er hægt að sjá hvernig álitamál um kjörgengi sé komið inn á borð forsætisnefndar enda hvergi að sjá að því máli hafi verið vísað til hennar. Því er óskað eftir skriflegu svari frá borgarlögmanni um valdsvið forsætisnefndar til að fjalla um vafa um kjörgengi, sérstaklega þegar haft er í huga að ekki er að sjá að borgarstjórn eða borgarráð, eða aðrir til þess bærir aðilar innan borgarkerfisins hafi vísað málinu til nefndarinnar. Þá er jafnframt óskað eftir að borgarlögmaður taki saman í svari sínu umfjöllun um hvaða stofnun er réttbær til að taka ákvörðun þegar vafi leikur á um almennt hæfi borgarfulltrúa,“ segir Sveinbjörg. 


Tengdar fréttir

Vafi leikur á kjörgengi fulltrúa Samfylkingar í borgarstjórn

Kristín Soffía Jónsdóttir hefur tekið sæti í borgarstjórn eftir dvöl erlendis í fæðingarorlofi. Samþykkt Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að borgarfulltrúi sem fer í leyfi fái samþykki borgarstjórnar áður en hann flytur lögheimili sitt.

Borgarstjórn fær tvö álit á kjörgengi Kristínar

Óskað hefur verið eftir áliti frá dósent við lagadeild Háskóla Íslands og Logos lögmannsþjónustu um kjörgengi borgarfulltrúa Samfylkingarinnar. Skrifstofustjóri borgarstjórnar telur engan vafa leika á kjörgengi borgarfulltrúans.

Ætla að funda aftur um kjörgengi Kristínar

Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar færði lögheimili sitt til Danmerkur fyrir töku fæðingarorlofs. Tók þátt í stjórnarfundum Strætó bs. í gegnum síma. Forseti borgarstjórnar segir upplýsingarnar nýjar og ætlar að boða fund vegna þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×