Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Ritstjórn skrifar
Pottur er brotinn í geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, segir maður sem náði bata eftir langa glímu við alvarlega kvíðaröskun. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

í fréttunum lítum við líka inn á Alþingi, þar sem fjármála- og efnahagsráðherra var í dag sakaður um að grafa undan íslensku krónunni og kynnum okkur risastóra flugvélapöntun WOW-air, sem hefur pantað sjö nýjar þotur, þar af fjórar breiðþotur sem draga alla leið til Asíu.

Loks förum við á Snæfellsnes, þar sem mikil uppbygging á sér nú stað í ferðaþjónustu.

Þetta og meira til á slaginu 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×