Enski boltinn

Birkir í byrjunarliði Aston Villa í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er í byrjunarliði Aston Villa á móti Brentford í ensku b-deildinni í kvöld.

Aston Villa keypti Birki frá svissneska liðinu Basel í síðustu viku og strákurinn hoppar beint inn í byrjunarliðið hjá Villa.

Birkir er ekki eini nýi leikmaðurinn sem fær tækifæri í byrjunarliðinu í kvöld því þeir Conor Hourihane (frá Barnsley) og Jonathan Kodjia (frá Bristol City) byrja líka.

Aston Villa hefur aðeins fengið tvö stig út úr síðustu fjórum leikjum og ekki unnið síðan á móti Burton Albion á öðrum degi jóla.

Leikur Brentford og Aston Villa er sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 en útsendingin hefst klukkan 19.40.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×